Innlent

Ökuritalaus hópferðabílstjóri sýknaður

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Héraðsdómur Suðurlands, sem er á Selfossi, taldi rannsókn lögreglu ófullnægjandi.
Héraðsdómur Suðurlands, sem er á Selfossi, taldi rannsókn lögreglu ófullnægjandi. vísir/pjetur
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag hópferðabílstjóra sem gefið var að sök að hafa brotið umferðarlög með því að aka hópferðabíl um Landmannalaugaveg án þess að hafa lögbundna tíma- eða vaktaáætlun, eða svokallaðan ökurita. Dómurinn taldi meðal annars að rannsókn lögreglu hafi verið ófullnægjandi.

Bílstjórinn, sem ók hópbifreið sem tekur 14 farþega, var stöðvaður við hefðbundið eftirlit lögreglu í júlí í fyrra. Í lögregluskýrslu segir að í ljós hafi komið að enginn ökuriti væri í bílnum, þrátt fyrir að bílstjóranum sé skylt að notast við ökurita við akstur, né akstursdagbók.

Maðurinn undirritaði þessa skýrslu þó ekki og fyrir dómi lagði hann fram dagbók um ferðir sínar og sagði bókina hafa verið í bílnum. Þá hafi hann verið á undanþágu frá ökurita. Jafnframt sagðist hann hafa talið að mönnum væri í sjálfsvald sett hvernig þeir skráðu ferðir sínar.

Dómurinn taldi sömuleiðis að fólk geti nokkurn veginn ráðið því sjálft hvernig það hagar skráningu. Maðurinn hafi lagt fram ljósrit af dagbók sinni þar sem finna megi skráningu á umræddri skráningu og allar upplýsingar um hana; ferðatíma, hvíldartíma, upphafsstöðu mælis og lokastöðu hans, sem og skráðan komutíma til Reykjavíkur.

Rannsókn málsins sé því ábótavant að því leyti að ekki sé hægt að sjá að rannsakað hafi verið með fullnægjandi hætti hvort bílstjórinn hafi skráð hjá sér með einhverjum hætti upplýsingar um ferð sína. Þá sé jafnframt ljóst að fullar upplýsingar um ferð verði ekki skráðar fyrr en í lok hennar. Var maðurinn því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×