Íslenski boltinn

Skagamenn komnir áfram eftir ótrúlegan endasprett | Öll úrslit kvöldsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Garðar skoraði þrennu gegn Fram.
Garðar skoraði þrennu gegn Fram. vísir/anton
Garðar Gunnlaugsson skoraði þrennu þegar ÍA vann ævintýralegan sigur á Fram, 4-3, í 32-liða úrslitum Borgunarbikars karla í kvöld.

Þegar þrjár mínútur voru til leiksloka var Fram 1-3 yfir og manni fleiri. Þá settu Skagamenn í fluggírinn.

Garðar minnkaði muninn á 87. mínútu og hann jafnaði svo metin úr vítaspyrnu. Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma skoraði varamaðurinn Ólafur Valur Valdimarsson sigurmark ÍA. Frábær endurkomusigur hjá Skagamönnum sem hafa farið afar illa af stað í Pepsi-deildinni.

Máni Austmann Hilmarsson skoraði eina mark leiksins þegar Stjarnan mætti Þrótti í Vogum.

William Daniels skoraði fjögur mörk þegar Grindavík rúllaði yfir Völsung, 7-1. Sam Hewson skoraði hin þrjú mörkin.

Vladimir Tufegdzic skoraði þrennu í 2-4 sigri Víkings R. á Haukum á Gaman ferða vellinum.

Víðir vann 0-1 sigur á Árborg á Selfossi. Helgi Þór Jónsson skoraði mark Víðismanna sem eru komnir í 16-liða úrslitin annað árið í röð.

Fylkir sló Breiðablik úr leik með 1-0 sigri á Flórídana vellinum.

Kennie Chopart og Tobias Thomsen skoruðu tvö mörk hvor í 1-4 sigri KR á Leikni F.

ÍR-ingar gerðu sér lítið fyrir og unnu KA-menn fyrir norðan, 1-3.

Þá vann ÍBV 4-1 sigur á KH á Hásteinsvelli.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.


Tengdar fréttir

Þórsarar úr leik eftir tap fyrir Ægismönnum

Matraðarbyrjun Þórsara á tímabilinu heldur áfram en í kvöld féll liðið úr leik fyrir 3. deildarliði Ægis á heimavelli í 32-liða úrslitum Borgunarbikars karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×