Innlent

Sögðu formanni Neytendasamtakanna upp

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ólafur Arnarson formaður Neytendasamtakanna.
Ólafur Arnarson formaður Neytendasamtakanna.
Stjórn Neytendasamtakanna hefur sagt upp ráðningarsamningi við Ólaf Arnarson, formann samtakanna sem starfaði jafnframt sem framkvæmdastjóri þeirra. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV en fyrr í dag bárust fregnir af því að stjórnin hefði lýst yfir vantrausti á Ólaf þann 6. maí síðastliðinn.

Nokkrar vikur eru síðan ráðningarsamningnum við Ólaf var sagt upp og segist hann í samtali við Vísi ætla að vinna þriggja mánaða uppsagnarfrestinn. Þá hyggst hann sitja áfram sem formaður Neytendasamtakanna en hann var kosinn til formennsku á þingi þeirra í október síðastliðnum. Næsta þing verður haustið 2018.

Í yfirlýsingu meirihluta stjórnar Neytendasamtakann, sem Stefán Hrafn Jónsson stjórnarmaður sendir fyrir hönd hans, segir að ástæður vantrausts séu fyrst og fremst þær „að að ráðningarsamningur formanns var ekki borinn undir stjórn og að skuldbindingar varðandi rekstur bifreiðar voru einnig án vitundar og samþykkis stjórnar. Þar sem fjárhagsstaða Neytendasamtakanna er viðkvæm treysti meirihlutinn sér ekki til að samþykkja slík vinnubrögð.“

Segir í yfirlýsingunni að stjórnin vinni nú að því leiðrétta þessar skuldbindingar sem hún segir Ólaf hafa stofnað til en hann vísar því á bug að hann hafi verið að skuldbinda samtökin án vitundar stjórnar. Hann segir væringar í gangi í stjórninni sem hann líti svo á að sé ekki lokið og telur óheppilegt að einhverjir stjórnarmenn hafi ákveðið að fara með málið í fjölmiðla.

„Það er síðan bara mál sem þarf að skoða hvernig Neytendasamtökunum verður best þjónað þegar formaðurinn er ekki í fullu starfi. Ég tel að það geti orðið erfitt og ekki í þágu samtakanna,“ segir Ólafur.

Yfirlýsingu Neytendasamtakanna má sjá í heild sinni hér að neðan:

Í ljósi fréttaflutnings í dag vilja stjórnamenn Neytendasamtakanna koma eftirfarandi á framfæri:

Á síðasta stjórnarfundi samtakanna þann 6. maí 2017 samþykkti meirihluti stjórnarinnar vantrauststillögu á formann Neytendasamtakanna, Ólaf Arnarson. Búið er að segja ráðningarsamning Ólafs upp.

Ástæður vantrausts eru fyrst og fremst sú að ráðningarsamningur formanns var ekki borinn undir stjórn og að skuldbindingar varðandi rekstur bifreiðar voru einnig án vitundar og samþykkis stjórnar. Þar sem fjárhagsstaða Neytendasamtakanna er viðkvæm treysti meirihlutinn sér ekki til að samþykkja slík vinnubrögð.

Ólafur Arnarson er góður talsmaður neytenda í fjölmiðlum en hann er ekki einráður í Neytendasamtökunum og starfar þar ásamt stjórn í að efla stöðu samtakanna. Fjárhagsstaða samtakanna leyfði ekki þær skuldbindingar sem Ólafur stofnaði til og er verið að vinna í að leiðrétta þær. Stjórn samtakanna vinnur að því að styrkja stöðu samtakanna enn frekar og koma í veg fyrir að samtökin þurfi að draga saman seglin og geti áfram þjónustað neytendur með sem bestum hætti.

Fyrir hönd meirihluta stjórnar Neytendasamtakanna

Stefán Hrafn Jónsson


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×