Bílar

VW Phaeton verður Phideon GTE og aðeins í Kína

Finnur Thorlacius skrifar
Volkswagen Phideon GTE.
Volkswagen Phideon GTE.
Volkswagen hætti við að framleiða og selja flaggskipið Phaeton í Evrópu en það þýddi ekki að bíllinn væri dauður úr öllum æðum. Ákveðið var að bjóða hann eingöngu í Kína, en þar hafa kaupendur mikla lyst fyrir stóra fólksbíla og láta gjarnan bílstjóra aka sér í þeim. Volkswagen hafði lokið við hönnun á næstu kynslóð Phaeton þegar ákvörðunin um að hætta framleiðslu hans í Evrópu var tekin.

Það hefði því verið mikil synd af sú hönnun hefði ekki nýst fyrirtækinu og farið fullkláruð í tunnuna. Volkswagen ákvað þó að breyta nafninu úr Phaeton í Phideon GTE. Fyrirtækið sýnir nú þessa fullgerðu útfærslu bílsins á bílasýningunni í Shanghai, en þessi bíll var líka sýndur í frumgerð á bílasýningunni í Genf í fyrra.  

Stærsti tengiltvinnbílinn

VW Phideon hefur þó breyst frá frumgerðinni, hann er orðinn tengitvinnbíll sem komast má á fyrstu 50 kílómetrana á rafmagni eingöngu og fær því stafina GTE í enda nafnsins. Er þarna því kominn stærsti tengiltvinnbíll sem Volkswagen hefur framleitt. Rafmagnsdrifrásin í bílnum er sú sama og finna má í Audi A6 L E-Tron bílnum sem líka fæst eingöngu í Kína. Sá bíll hefur verið til sölu í Kína í nokkur ár og selst vel.

VW Phideon er eingöngu framleiddur í Kína. Hann má fá með 2,0 lítra TFSI bensínvél sem er 245 hestöfl og togar 500 Nm. Að auki er í bílnum 14,1 kWh rafhlaða sem tryggir 50 km akstur á rafmagninu einu saman og 850 km heildardrægni. Bílinn má einnig fá með 3,0 lítra V6 bensínvél sem er 300 hestöfl og fjórhjóladrifinn.

Líkur eru á því að Phaeton sé þó ekki alveg horfinn frá Evrópu, en búist er við því að hann verði boðinn innan fárra ára sem hreinræktaður rafmagnsbíll og þá framleiddur í Þýskalandi, nánar tiltekið í stærstu verksmiðju Volkswagen í Wolfsburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×