Enski boltinn

Sjáðu mörkin hjá Arsenal og allt það helsta frá Anfield | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Danny Welbeck fagnar marki sínu í gær.
Danny Welbeck fagnar marki sínu í gær. vísir/getty
Granit Xhaka og Danny Welbeck skoruðu mörk Arsenal í 2-0 sigri á Manchester United í gær í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sigurinn var mikilvægur fyrir Arsenal sem er aftur komið í baráttuna um Meistaradeildarsæti en liðið er í sjötta sæti deildarinnar með 63 stig, sex stigum á eftir Manchester City en á einn leik til góða.

José Mourinho er búinn að viðurkenna uppgjöf í baráttunni um fjórða sætið og ætlar að einbeita sér að Evrópudeildinni en hann hvíldi lykilmenn í tapleiknum á móti lærisveinum Wengers.

Liverpool er í fínum málum í þriðja sætinu þrátt fyrir markalaust jafntefli á móti Southampton í gær en á Anfield stefnir allt í Meistaradeildarfótbolta á næstu leiktíð.

Mörkin frá Emirates og allt það helsta frá Anfield má sjá hér að neðan.

Arsenal - Man. Utd 0-0
Liverpool - Southampton 0-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×