Enski boltinn

Kante bestur hjá blaðamönnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
N'Golo Kante.
N'Golo Kante. vísir/getty
N'Golo Kante, miðjumaður Chelsea, var í dag valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar af blaðamönnum.

Alls kjósa 340 blaðamenn og Kante varð efstur í kjörinu en félagi hans hjá Chelsea, Eden Hazard, varð annar. Dele Alli hjá Tottenham varð svo þriðji.

Kante var því valinn bestur af bæði blaðamönnum og leikmönnum en leikmenn kusu hann bestan á dögunum.

Þetta er fimmta sinn á síðustu sex árum sem sami leikmaður er valinn bestur af bæði leikmönnum og blaðamönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×