Plúsarnir eru miklu fleiri heldur en mínusar Íslandsbanki kynnir 8. maí 2017 21:00 Sigrún Ósk Kristjánsdóttir.
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona byrjaði að vinna og leggja fyrir 12 ára gömul, henni lá á að verða fullorðin og var búin að ákveða fyrstu fasteignakaupin 18 ára. Í dag býr hún á Akranesi ásamt fjölskyldu sinni og ráðleggur fólki að skoða möguleikana út fyrir höfuðborgarsvæðið. „Mér lá mjög mikið á að verða fullorðin og var orðin 18 ára þegar ég ákvað að ég yrði að kaupa mína fyrstu íbúð,“ segir Sigrún Ósk. Hún var rosalega upptekin frá því að hún var 12 ára í að vinna og leggja fyrir. Hún vann öll störf sem henni datt í hug, „passa börn, ég var komin á sólbaðsstofuna í bænum, vinnuskólann, barinn, bara allt sem mér datt í hug, að bera út blöð.“ Með þessum hætti gat hún lagt 20% til hliðar og svo tóku hún og maðurinn hennar 80% lán , enn þann dag í dag er þetta eina lánið sem Sigrún Ósk hefur tekið á ævi sinni. Þegar þau ákváðu að kaupa íbúð, skoðuðu þau nokkra möguleika og enduðu á að kaupa blokkaríbúð á Akranesi. Eitt sumar – fjögur störf „Það var planið að við myndum bæði vera farin að vinna þegar við fluttum inn en svo ákvað kærastinn minn að fara í skóla, þannig að til þess að geta flutt inn ákvað ég sumarið áður að ráða mig í fjórar vinnur og afrekaði það að vinna meira og minna allan sólarhringinn allt sumarið.“ Vinirnir lögðust á eitt með aðstoð og komu og hjálpuðu til við að parketleggja og mála. „Svo búum við svo vel að eiga marga mjög góða vini og það lögðust allir á eitt að hjálpa okkur að græja þessa fyrstu íbúð.“ Sigrún Ósk er alin upp við það að nýta hlutina og reyna að fara ágætlega með peninga. „Ég er að verða 37 ára og ég get talið húsgögnin sem ég hef keypt ný á fingrum annarrar handar.“Kíktu út fyrir Reykjavík Sigrún Ósk ráðleggur fólki að kíkja út fyrir höfuðborgarsvæðið þegar kemur að því að fjárfesta í fasteignum. „Bæði er það töluvert ódýrara og fyrir mitt leyti get ég sagt að plúsarnir eru miklu fleiri heldur en mínusar. Það er fótbolti hérna. Svo er bara Akranes frábært samfélag, frábærir skólar og leikskólar, soldið allt til alls.“Nóg hægt að gera sem kostar ekki fullt af peningum „Ef við fjölskyldan ætlum að gera eitthvað saman, þegar við erum ekki að heimsækja vini eða fjölskyldu þá förum við mjög oft í fótbolta, niður á Langasand, í golf, í skógræktina, það er hægt að gera mjög margt saman sem kostar ekki endilega peninga. Ég ólst hérna upp og langaði alltaf að börnin mín fengju að gera það líka.“Þetta var saga Sigrúnar Óskar, hvernig viltu að þín saga verði? Pantaðu ráðgjöf og komdu til okkar og gerðu þitt plan.Greinin er kostuð af Íslandsbanka en hún er hluti af Það er hægt, verkefni bankans um fyrstu kaup á fasteign.
Það er hægt Mest lesið Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni Lífið Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Lífið Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Lífið Fleiri fréttir Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Sjá meira