Bíó og sjónvarp

Simpsons gera stólpagrín að fyrstu hundrað dögum Trump

Samúel Karl Ólason skrifar
Trump fer yfir helstu afrek sín.
Trump fer yfir helstu afrek sín.
Framleiðendur þáttanna um Simpsons fjölskylduna eru ekkert að halda aftur af sér í gagnrýni sinni á Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Þeir hafa birt myndband þar sem hann fer yfir sína fyrstu daga og helstu verk sín á þeim tíma.

Myndbandið byrjar á frekar grimmilegan hátt og færist svo yfir í þar sem Trump liggur upp í rúmi telur hann upp sín helstu afrek. Þau eru að lækka forgjöfina sína, fjölga fylgjendum sínum á Twitter og gert leyfilegt að skjóta birni í dvala.

Þá er Marge Simpson búin með þunglyndislyf sem áttu að endast henni í fjögur ár og bent á að einungis 6,8 prósent af kjörtímabili Trump séu búin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×