Körfubolti

NBA: Hrun í fjórða og enn eitt tapið hjá Cleveland-liðinu í nótt | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James er hér búinn að fá sjöttu villuna í nótt og skilur ekkert í því.
LeBron James er hér búinn að fá sjöttu villuna í nótt og skilur ekkert í því. Vísir/AP
Þrenna frá LeBron James kom ekki í veg fyrir enn eitt tap Cleveland Cavaliers-liðsins í NBA-deildinni í nótt en þrenna James Harden hjálpaði Houston Rockets hinsvegar að vinna sinn leik.

NBA-meistarar Cleveland töpuðu 125-126 á móti Atlanta Hawks í framlengdum leik en Cavaliers-liðið tapaði með 14 stigum á heimavelli á móti Hawks á föstudaginn.

Cleveland-liðið var reyndar í frábærum málum í leiknum en missti hann í framlengingu eftir að hafa tapað fjórða leikhlutanum 44-18. Það að Cavs-liðið hafi misst niður 26 stiga forystu í lokaleikhlutanum er enn eitt áhyggjuefnið fyrir lið sem hefur tapað 11 af síðustu 20 leikjum sínum.

Kyrie Irving skoraði 45 stig og gaf 9 stoðsendingar í leiknum og LeBron James var með 32 stig, 16 fráköst og 10 stoðsendingar. James endaði hinsvegar leikinn á bekknum eftir að hafa fengið sína sjöttu villu í framlengingunni. Paul Millsap skoraði 22 stig fyrir Atlanta.



James Harden var með 35 stig, 15 stoðsendingar og 11 stoðsendingar þegar Houston Rockets vann 135-128 sigur á Sacramento Kings. Þetta var 21. þrennan hans og í 29. skipti á tímabilinu þar sem hann er með meira en 30 stig og 10 stoðsendingar í leik. Ryan Anderson var með sex þrista og samtals 21 stig fyrir Houston en Skal Labissiere skoraði mest fyrir Sacramento eða 25 stig.



D'Angelo Russell skoraði þriggja stiga flautukörfu sem tryggði Los Angeles Lakers 110-109 sigur á Minnesota Timberwolves en þetta var fjórði sigur Lakers-liðsins í röð. Tyler Ennis var stigahæstur hjá Lakers með 20 stig á 23 mínútum en Russell skoraði 16 stig.

Karl-Anthony Towns var með 40 stig og 21 fráköst og Andrew Wiggins skoraði 40 stig en það dugði ekki Minnesota-liðinu sem hefur tapað fjórum leikjum í röð og 10 af síðustu 13 leikjum sínum.

DeMar DeRozan skoraði 35 stig fyrir Toronto Raptors sem vann 110-97 útisigur á New York Knicks og tryggði sér að minnsta kosti þriðja besta árangurinn í Austurdeildinni. Þetta var líka annað árið sem Toronto Raptors liðið vinnur 50 leiki. Kyle Lowry var með 17 stig og 11 stoðsendingar fyrir Toronto en hjá New York var Willy Hernangomez atkvæðamestur með 24 stig og 11 fráköst.

Devin Booker og T.J. Warren skoruðu báðir 21 stig fyrir Phoenix Suns sem vann 124-111 sigur á Dallas Mavericks. Booker hefur þar með skorað 2774 stig fyrir 21 árs afmælisdaginn og fór upp fyrir Kobe Bryant. Aðeins Carmelo Anthony, Kevin Durant og sá stigahæsti, LeBron James, hafa skorað fleiri stig í NBA áður en þeir urðu 21 árs gamlir.



Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt:

Los Angeles Lakers - Minnesota Timberwolves    110-109    

Memphis Grizzlies - Detroit Pistons    90-103    

Phoenix Suns - Dallas Mavericks    124-111    

Sacramento Kings - Houston Rockets    128-135    

Denver Nuggets - Oklahoma City Thunder    105-106    

Atlanta Hawks - Cleveland Cavaliers    126-125 (111-111)    

New York Knicks - Toronto Raptors    97-110

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×