Bíó og sjónvarp

Sjáðu fyrstu stikluna úr Thor: Ragnarok

Birgir Olgeirsson skrifar
Þrumuguðinn Þór er í miklum vandræðum í Thor: Ragnarok í fyrstu stiklunni úr þessari mynd sem væntanleg er í kvikmyndahús í nóvember.

Fyrir þá sem vita það ekki nú þegar, þá munu birtast hér upplýsingar um söguþráð myndarinnar. Þeir sem vilja ekkert vita um hann er ráðlagt að horfa ekki á stikluna og lesa ekki lengra. 

Í stiklunni sést hvernig Hel, gyðja dauðaríkisins, sviptir hann hamrinum Mjölni og sendir hann á framandi plánetu þar sem hann er gerður að skylmingaþræli. Þarf  hann meðal annars að mæta sína góða félaga Hulk í bardagahringnum en það virðist vera ansi grunnt á vináttunni líkt og sést í stiklunni.

Allt gerist þetta undir blússandi undirspili frá Led Zeppelin, enda viðeigandi. Lagið sem varð fyrir valinu er Immigrant song þar sem meðal annars er sungið um hamar guðanna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×