Fótbolti

Messi með tvö mörk og stoðsendingu í sigri Börsunga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Messi er markahæstur í spænsku deildinni með 29 mörk.
Messi er markahæstur í spænsku deildinni með 29 mörk. vísir/getty
Barcelona minnkaði forskot Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar aftur niður í þrjú stig með 3-2 sigri á Real Sociedad í kvöld.

Fyrri hálfleikurinn var afar fjörugur og innihélt fimm mörk.

Lionel Messi kom Börsungum yfir á 17. mínútu og 20 mínútum síðar bætti Argentínumaðurinn öðru marki við. Messi hefur nú skorað 29 mörk í spænsku deildinni í vetur.

Sociedad minnkaði muninn með sjálfsmarki Samuels Umtiti á 42. mínútu en aðeins tveimur mínútum síðar kom Paco Alcácer Barcelona aftur tveimur mörkum yfir eftir sendingu frá Messi.

Xabi Prieto minnkaði muninn í 3-2 í uppbótartíma fyrri hálfleiks en fleiri urðu mörkin ekki.

Barcelona er þremur stigum á eftir Real Madrid en hefur leikið einum leik meira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×