Enski boltinn

Klopp: Ég er mjög glaður

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Klopp brosti út að eyrum eftir sigurinn á The Hawthornes.
Klopp brosti út að eyrum eftir sigurinn á The Hawthornes. vísir/getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var hæstánægður með sigurinn á West Brom í dag.

„Þetta var stór sigur gegn sterku liði. Við spiluðum mjög vel strax frá upphafsflautinu. Strákarnir gerðu frábærlega og ég er mjög glaður,“ sagði Klopp eftir leik.

„Við þurftum að aðlagast leik West Brom og við vildum alls ekki gefa þeim föst leikatriði. Við gerðum mjög vel í fyrri hálfleik þótt flæðið í leik okkar hafi ekki verið jafn gott og í þeim seinni þar sem hreyfingin á okkur var betri.“

Klopp hrósaði varnarleik Liverpool og markverðinum Simon Mignolet sem átti mjög góðan leik.

„Við skoruðum gott mark eftir fast leikatriði og héldum boltanum vel. Við vörðumst vel og Simon var mjög líflegur,“ sagði Klopp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×