Enski boltinn

Tvö af köldustu liðum deildarinnar mætast á Árbökkum | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arsenal sækir Middlesbrough heim í lokaleik 33. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.

Arsenal hefur gengið illa að undanförnu og steinlá fyrir Crystal Palace fyrir viku.

Skytturnar eru í 7. sæti deildarinnar en fara upp í það sjötta með sigri. Arsenal er 10 stigum frá Meistaradeildarsæti en á leiki til góða á liðin í kringum sig.

Ef Arsenal er í vondum málum er Boro í enn verri málum. Boro hefur ekki enn unnið leik á árinu 2017 og stjóraskiptin hafa ekki breytt neinu.

Boro er í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með 24 stig, sex stigum frá öruggu sæti. Liðið á reyndar tvo leiki til góða á bæði Hull City og Swansea City sem eru í sætunum fyrir ofan.

Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum á Emirates.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×