Fótbolti

Fjórir handteknir í tengslum við morðið á Henriquez

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Amilcar Henriquez.
Amilcar Henriquez. vísir/getty
Lögreglan í Panama hefur handtekið fjóra menn sem eru grunaðir um að hafa myrt knattspyrnumanninn Amilcar Henriquez.

Hinn 33 ára gamli Henriquez var myrtur er hann yfirgaf heimili sitt á laugardag. Vinur hans, Delano Wilson, var einnig myrtur.

Allir sem hafa verið handteknir eru táningar. Af hverju Henriquez var myrtur er enn óljóst.

Lögreglan segir þó að morðið hafi verið skipulagt og að morðingjarnir hafi beðið í leyni eftir því að Henriquez færi heiman frá sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×