Innlent

Ríkur vilji til að styrkja viðskiptatengsl ríkjanna í kjölfar Brexit

Atli Ísleifsson skrifar
Greg Hands, ráðherra í breska utanríkisviðskiptaráðuneytinu, og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í London í dag.
Greg Hands, ráðherra í breska utanríkisviðskiptaráðuneytinu, og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í London í dag. utanríkisráðuneytið
Ríkur vilji er til að styrkja frekar viðskiptatengsl Íslands og Bretlands í kjölfar yfirvofandi útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.

Þetta kom fram á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og David Jones, ráðherra sem fer með mál er varða úrsögn Breta úr ESB í dag. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að ráðherrarnir hafi verið sammála um að efla þegar samráð ríkjanna í viðskiptamálum, einnig í málaflokkum á borð við sjávarútvegsmál og umhverfis- og orkumál.

„Á fundi utanríkisráðherra með Greg Hands, ráðherra í utanríkisviðskiptaráðuneytinu, kom jafnframt fram mikill vilji til samráðs við Ísland fram að formlegri útgöngu svo undirbúa megi jarðveginn fyrir framtíðarviðræður landanna,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Guðlaugi Þór að það sé í raun ómögulegt að hugsa til þess að nýjar viðskiptahindranir kunni að rísa milli Evrópuríkja að tveimur til þremur árum liðnum. „Slíkt væri úr takti við þróun viðskipta í Evrópu og fríverslunar í heiminum og á fundum mínum í London hefur komið skýrt fram að Bretar og Íslendingar horfa eins á hlutina og vilja vera í fararbroddi þegar kemur að alþjóðlegri fríverslun,“ segir utanríkisráðherra.

David Jones, ráðherra sem fer með mál er varða úrsögn Breta úr ESB, og Guðlaugur Þór.utanríkisráðuneytið
Utanríkisráðherra hitti einnig Hillary Benn, þingmann Verkamannaflokksins og formann Brexit-nefndar neðri deildar breska þingsins, þar sem útgöngumálin voru rædd sem og möguleikar á frekara samstarfi ríkjanna tveggja í sameiginlegum hagsmunamálum. Þá átti Guðlaugur Þór fund með Angus McNeal, þingmann úr skoska þjóðarflokknum og formanni utanríkisviðskiptanefndar neðri deildar breska þingsins, sem fyrir skömmu birti skýrslu sína um möguleika Breta á fyrirkomulagi fríverslunar eftir útgönguna úr ESB. Í skýrslu þingnefndarinnar er lagt til að Bretar íhugi alvarlega þann möguleika að gerast aðilar að EFTA á ný.

„Þetta voru afar áhugaverðir fundir og jafnvel þótt aðild Breta að EFTA sé einungis ein af mögulegum leiðum sem Bretar hafa haft til skoðunar er ljóst að reynsla og árangur okkar EFTA-ríkjanna af alþjóðlegri fríverslun vekur mikla athygli,“ segir Guðlaugur Þór.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×