Victoria Beckham heiðruð fyrir framlag sitt til tísku Anton Egilsson skrifar 19. apríl 2017 20:28 Vilhjálmur Bretaprins veitti Victoriu orðuna í Buckingham höll í dag. Vísir/AP
Victoria Beckham bætti enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn í dag þegar hún var heiðruð með orðu breska heimsveldisins, OBE. Orðuna fékk hún fyrir framlag sitt til tísku. Það var sjálfur Vilhjálmur Bretaprins sem veitti Victoriu orðuna við hátíðlega athöfn í Buckingham höll að viðstöddum eiginmanni hennar, David Beckham, og foreldrum hennar. Þess má til gamans geta að fótboltakappinn fyrrverandi hlaut einmitt sama heiður árið 2003. „Ef þú vinnur að því baki brotnu að elta draumana þína þá getur þú áorkað stóra hluti,” sagði Victoria í samtali við Daily Mail að athöfninni lokinni. Victoria skaust fyrst upp á stjörnuhimininn árið 1994 þegar hljómsveit hennar Spice Girls eða Kryddpíurnar kom fram á sjónarsviðið en sveitin öðlaðist heimsfrægð á skömmum tíma. Hljómsveitin lagði upp laupana árið 2001 en hefur þó komið saman síðan, meðal annars í tilefni ólympíuleikanna í London árið 2012. Árið 2008 þreytti hún svo frumraun sína í tískuheiminum þegar hún frumsýndi sína fyrstu fatalínu á tískuvikunni í New York. Síðan þá hefur mikið vatn til sjávar runnið og er Victoria virtur fatahönnuður í dag.
Mest lesið Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað Lífið Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Lífið Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Lífið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Lífið Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið „Eru endaþarmsmök hættuleg?“ Lífið Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Lífið Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Lífið Inga Lind selur íbúð við Valshlíð Lífið Fundu föt við hæfi á síðustu stundu fyrir Cannes Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað „Eru endaþarmsmök hættuleg?“ Biggi Maus breiðir yfir Frikka Dór Farnar á hestbak eins og hálfs og fjögurra ára Fleiri sniðgengu en ekki Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Inga Lind selur íbúð við Valshlíð „Þetta er náttúrulega sorgarsaga okkar Íslendinga“ Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Fann fíkniefnin strax Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Ráðist á Steve Buscemi og hann fluttur á sjúkrahús Táraflóð í útgáfuteiti Bjarna Hlutu „Óskarinn“ í brúðkaupsskipulagningu Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision Herra Hnetusmjör hitti Akon: „Þeir vita sem vita“ Ari Bragi og Dóróthea eignuðust dreng Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Greindu frá kyninu á ströndinni Stjörnulífið: „Mér fannst mæðradagurinn alltaf triggerandi“ Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú „Það var algjört kossaflens í gangi í Breiðholtinu“ Leikkonan sem lék fyrsta fórnarlambið í Ókindinni er látin Fögnuðu heimkomu Nemo Sjá meira