Enski boltinn

Klopp: Ólíklegt að Mané verði með á miðvikudaginn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Klopp fagnaði vel og innilega í leikslok.
Klopp fagnaði vel og innilega í leikslok. vísir/getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir ólíklegt að Sadio Mané verði með í leiknum gegn Bournemouth á miðvikudaginn.

Mané fór meiddur af velli eftir tæpan klukkutíma í grannaslag Liverpool og Everton í dag en meiðslin litu ekki vel út.

„Þetta var góður leikur. Við vitum ekki hvað gerðist með Sadio en það lítur ekki út fyrir að hann verði klár fyrir miðvikudaginn,“ sagði Klopp eftir leik.

Everton-menn gengu hart fram í leiknum og Ross Barkley og Ashley Williams voru heppnir að hanga inni á vellinum.

Klopp vildi þó ekki gera of mikið úr tæklingum Everton-manna í leiknum í dag.

„Ég er enn eins og gestur hérna í þessu landi. Hvernig get ég ákveðið hvað er í lagi og hvað er ekki í lagi?“ sagði Klopp.

„Að mínu mati eiga leikmenn að yfirgefa völlinn í heilu lagi en ekki meiddir.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×