Handbolti

Aron með þrjú þegar Veszprém flaug áfram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron skoraði þrjú mörk úr sex skotum.
Aron skoraði þrjú mörk úr sex skotum. vísir/afp
Aron Pálmarsson og félagar í ungverska meistaraliðinu Veszprém eru komnir áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir stórsigur á Zagreb, 29-19.

Veszprém vann fyrri leikinn í Zagreb með einu marki, 22-23, en bætti um betur á heimavelli sínum í dag.

Aron skoraði þrjú mörk fyrir Veszprém en hann er óðum að komast í betra form eftir erfið meiðsli sem héldu honum m.a. frá þátttöku á HM í Frakklandi í janúar.

Veszprém mætir annað hvort Montpellier eða Evrópumeisturum Kielce í 8-liða úrslitunum.

Paris Saint-Germain tryggði sér einnig sæti í 8-liða úrslitunum í dag. PSG vann þá annað franskt lið, Nantes, með átta marka mun, 35-27. Fyrri leiknum lyktaði með 26-26 jafntefli.

PSG mætir annað hvort Bjerringbro-Silkeborg eða Pick Szeged í 8-liða úrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×