Enski boltinn

Markalaust í Suðurstrandarslagnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arter skýtur boltanum yfir úr vítaspyrnu.
Arter skýtur boltanum yfir úr vítaspyrnu. vísir/getty
Southampton og Bournemouth gerðu markalaust jafntefli í Suðurstrandarslag í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Southampton var meira með boltann en Bournemouth var nær því að skora í leiknum.

Harry Arter fékk gullið tækifæri til að koma Bournemouth yfir þegar Jonathan Moss dæmdi vítaspyrnu á Ryan Bertrand á 79. mínútu.

Vítaspyrna Arters var hins vegar algjörlega misheppnuð og fór himinhátt yfir markið.

Liðin eru jöfn að stigum í 10.-11. sæti deildarinnar. Southampton á þó tvo leiki til góða á Bournemouth.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×