Handbolti

Ljónin lögðu Leipzig með minnsta mun

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur er í hópi markahæstu leikmanna þýsku úrvalsdeildarinnar.
Guðjón Valur er í hópi markahæstu leikmanna þýsku úrvalsdeildarinnar. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen vann nauman sigur á Leipzig, 24-23, þegar liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Svissneski leikstjórnandinn Andy Schmid skoraði sigurmark Löwen þegar 10 sekúndur voru til leiksloka.

Með sigrinum minnkaði Löwen forskot toppliðs Flensburg niður í þrjú stig. Ljónin eiga einnig leik til góða á Flensburg.

Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Löwen sem féll úr leik fyrir Kiel í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fyrr í vikunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×