Handbolti

Guðmundur fer yfir leið Dana að Ólympíugullinu á súpufundi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur og félagar fagna Ólympíugullinu.
Guðmundur og félagar fagna Ólympíugullinu. vísir/anton
Guðmundur Guðmundsson, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands og Danmerkur, heldur fyrirlestur um leið Dana að Ólympíugullinu á miðvikudaginn kemur.

Þar fer Guðmundur yfir leiðina sem danska handboltalandsliðið fór að gullinu á Ólympíuleikunum í Ríó 2016.

Danir urðu þá Ólympíumeistarar í fyrsta sinn en þeir unnu Frakka í úrslitaleiknum.

Það er HSÍ sem stendur fyrir þessum fyrirlestri en hann fer fram í E-sal í höfuðstöðvum ÍSÍ miðvikudaginn 5. apríl.

Boðið verður upp á dýrindis súpu og brauð, kostnaður 900 krónur á mann og hefst fyrirlesturinn klukkan 12:00.

Skráning er á magnus@hsi.is fyrir klukkan 17:00, þriðjudaginn 4. apríl. Fyrirlesturinn er háður lágmarksþátttöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×