Handbolti

Kiel endurheimti 2. sætið með torsóttum sigri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð og félagar hafa unnið þrjá deildarleiki í röð.
Alfreð og félagar hafa unnið þrjá deildarleiki í röð. vísir/getty
Kiel vann nauman sigur á Stuttgart, 25-24, þegar liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Marko Vujin skoraði sex mörk fyrir Kiel, þar af tvö síðustu mörk liðsins í leiknum. Austurríska ungstirnið Nikola Bylik skoraði fjögur mörk.

Með sigrinum komust lærisveinar Alfreðs Gíslasonar upp fyrir Rhein-Neckar Löwen og í 2. sæti deildarinnar.

Kiel er með 42 stig, tveimur stigum á eftir Flensburg. Löwen er svo með 31 stig í 3. sætinu. Flensburg og Löwen eiga bæði leiki til góða á Kiel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×