Körfubolti

Ófarir Knicks ætla engan enda að taka

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rose kom til New York Knicks frá Chicago Bulls í sumar.
Rose kom til New York Knicks frá Chicago Bulls í sumar. vísir/getty
Derrick Rose, leikstjórnandi New York Knicks, spilar ekki meira með liðinu í NBA-deildinni í vetur vegna hnémeiðsla.

Rose var valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar tímabilið 2010-11 en síðan þá hafa erfið hnémeiðsli hægt á honum.

Chicago Bulls skipti Rose til New York í sumar. Hann skilaði 18,0 stigum, 3,8 fráköstum og 4,4 stoðsendingum að meðaltali í leik í vetur.

Samningur Rose rennur út í sumar en hann hefur sagt að hann vilji spila áfram fyrir Knicks. Það er þó spurning hvort þessi nýjustu meiðsli setji strik í þann reikning.

Knicks situr í 12. sæti Austurdeildarinnar og á ekki lengur möguleika á að komast í úrslitakeppnina.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×