Bíó og sjónvarp

Chris Evans gerir mynd um áhorfandann Dennis sem er algjör auli

Birgir Olgeirsson skrifar
Evans vissi nákvæmlega hvernig Dennis sefur og borðar og hafði einnig farið yfir tölvupóst hans því hann væri staðráðinn í að ná kjarna persónu hans, við litla hrifningu Dennis.
Evans vissi nákvæmlega hvernig Dennis sefur og borðar og hafði einnig farið yfir tölvupóst hans því hann væri staðráðinn í að ná kjarna persónu hans, við litla hrifningu Dennis.
Leikarinn Chris Evans gerði gott mót í spjallþætti Jimmy Kimmel í gærkvöldi þar sem hann kynnti nýjustu mynd sína þar sem hann leikur undirmálsmanninn Dennis.

Evans hefur getið sér gott orð í ofurhetjumyndum, þar sem hann er hvað þekktastur fyrir að leika Captain America, en hefur einnig leikstýrt kvikmyndum sem og að leika í minni „óháðum“ myndum.

Hann sagðist vilja gera mynd þar sem hann týnir sér algjörlega í karakter, mynd sem gæti orðið til þess að hann fengi Óskarsverðlaun.

Evans sagði þó að nú þegar væri búið að gera kvikmyndir um allar helstu áhugaverðu manneskjur sögunnar og því þyrfti hann að finna eitthvað annað.

Og það hafði hann svo sannarlega gert og benti á einn í áhorfendahópi þáttarins sem reyndist vera Dennis sem Evans sagðist hafa „rannsakað“ undanfarnar sex vikur. Evans vissi nákvæmlega hvernig Dennis sefur og borðar og hafði einnig farið yfir tölvupóst hans því hann væri staðráðinn í að ná kjarna persónu hans, við litla hrifningu Dennis.

Fyrir þá sem ekki hafa áttað sig á því þá var þetta allt saman sviðsett, en engu að síður ákaflega skemmtilegt og sýndi Evans áhorfendum stiklu úr myndinni um aulan Dennis sem má sjá hér fyrir neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×