Íslenski boltinn

Fyrrum leikmaður Rangers til FH

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Craword á ferðinni með Rangers.
Craword á ferðinni með Rangers. vísir/getty
Skotinn Robbie Crawford hefur fengið félagaskipti í FH er orðinn leikmaður Fimleikafélagsins.

Þetta er 23 ára gamall miðjumaður sem var í skoðun hjá FH í æfingaferð á dögunum. Hann heillaði þjálfara liðsins, Heimi Guðjónsson, nógu mikið til þess að fá samning.

Þessi strákur er alinn upp hjá skoska stórliðinu Rangers. Hann hjálpaði liðinu upp um tvær deildir eftir að það varð gjaldþrota og var sent í kjallarann í skoska boltanum.

Crawford er því löglegur til þess að spila með FH gegn Blikum í átta liða úrslitum Lengjubikarsins í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×