Þjálfara Fram var ráðið frá því að taka við liðinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2017 19:15
Guðmundur Helgi Pálsson, þjálfari Fram, segir að sér hafi verið ráðið frá því að taka við liðinu í sumar. Fram missti bróðurpartinn úr sínum leikmannahóp í sumar auk þess sem þjálfarinn Guðlaugur Arnarsson hætti. Reynir Þór Reynisson tók við en entist aðeins nokkrar vikur í starfi. Þá kom Guðmundur Helgi til skjalanna og tók við Fram-liðinu sem hann lék með á sínum tíma. „Ég talaði við nokkra fyrir þetta og menn voru á því að ég ætti ekki að láta slag standa. En ég leit á þetta sem áskorun, lét vaða og sé ekki eftir því í dag,“ sagði Guðmundur Helgi í samtali við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar 2. Fram var spáð neðsta sæti deildarinnar og flestir voru á því að liðið myndi ekki ná í mörg stig í vetur. En sú varð ekki raunin því hið unga lið Fram bjargaði sér frá falli í næstsíðustu umferð Olís-deildarinnar og endaði að lokum í 6. sæti eftir góðan endasprett. Fram mætir Íslandsmeisturum Hauka í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. „Við tókum inn unga leikmenn og nýttum það sem til var. Þetta eru flottir strákar sem hafa lagt sig 100% fram. Þegar menn gera það og hafa gaman að er hægt að gera fullt af góðum hlutum,“ sagði Guðmundur Helgi. „Mér finnst deildin hafa verið mjög góð í vetur. Góðir leikmenn komu til baka og þetta var skemmtilegt.“ Fréttina í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Olís-deild karla Tengdar fréttir Þessi lið mætast í úrslitakeppninni Deildarkeppni Olís-deildar karla lauk í kvöld og eftir harða baráttu í allan vetur er ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni. 4. apríl 2017 21:52 Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Fram 25-26 | Fram í úrslitakeppnina eftir dramatík Fram tryggði sér sæti í úrslitakeppni Olís-deildarinnar eftir dramatískan sigur á Gróttu í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi í kvöld. Fram mætir Haukum í 8-liða úrslitum en Grótta deildarmeisturum FH. 4. apríl 2017 21:45 Úrslitakeppnin hefst klukkan 17.00 á sunnudaginn Deildarkeppni Olís-deildar karla í handbolta lauk í gær og það þarf ekki að bíða lengi eftir úrslitakeppninni sem hefst strax um næstu helgi. 5. apríl 2017 10:52 Mest lesið Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Körfubolti Tveir Færeyingar til silfurliðsins Handbolti Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar Sport „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ Íslenski boltinn „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Íslenski boltinn Courtois byrjar úrslitaleikinn Fótbolti Benedikt tekinn við Stólunum Körfubolti Pressa Þjóðverja bar loks árangur Fótbolti Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tveir Færeyingar til silfurliðsins Íslandsmeistarinn Aron er hvergi nærri hættur Gummi Gumm velur Höllu Hrund í liðið sitt Magdeburg meistari eftir stórsigur í Mannheim Guðjón Valur kom Gummersbach í Evrópukeppni Óðinn og félagar náðu ekki að tryggja sér titilinn Mikkel eftir tapið á móti liði Gumma Gumm: Þurfum að horfa inn á við Guðmundur orðlaus „Mig langaði bara ógeðslega mikið að verða Íslandsmeistari“ „Hann er bara svindkall í þessari deild“ „Ég held að ég hafi sjaldan verið jafn glaður“ Uppgjör: Afturelding - FH 27-31 | FH-ingar Íslandsmeistarar Twitter um langþráðan FH-titil: „Það sem ég elska þetta“ Erfitt kvöld hjá okkar mönnum Strákarnir hans Guðmundar knúðu fram oddaleik Sigvaldi og Bjarki Már meistarar Strákarnir okkar með Slóveníu, Kúbu og Grænhöfðaeyjum í riðli á HM Afturelding getur knúið fram oddaleik í kvöld „Stórkostlegt fyrir íslenskt íþróttalíf“ Tryggvi Þórisson sænskur meistari með Sävehof Tinna Sigurrós í Stjörnuna Tjörvi til Bergischer Ekki tilbúinn að ræða hversu margir kveðja Val Utan vallar: Þegar góðu gæjarnir koma fyrstir í mark Ómar Ingi með fjörutíu mörk í síðustu þremur leikjum „Gerist ekki grátlegra“ „Finnst þetta geðveikur sigur“ „Geggjað að sjá Símon setja hann í lokin“ Hetjan Símon: „Helvítis léttir“ Uppgjörið: FH-Afturelding 27-26 | FH-ingar tóku forystuna með síðasta skoti leiksins Sjá meira
Þessi lið mætast í úrslitakeppninni Deildarkeppni Olís-deildar karla lauk í kvöld og eftir harða baráttu í allan vetur er ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni. 4. apríl 2017 21:52
Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Fram 25-26 | Fram í úrslitakeppnina eftir dramatík Fram tryggði sér sæti í úrslitakeppni Olís-deildarinnar eftir dramatískan sigur á Gróttu í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi í kvöld. Fram mætir Haukum í 8-liða úrslitum en Grótta deildarmeisturum FH. 4. apríl 2017 21:45
Úrslitakeppnin hefst klukkan 17.00 á sunnudaginn Deildarkeppni Olís-deildar karla í handbolta lauk í gær og það þarf ekki að bíða lengi eftir úrslitakeppninni sem hefst strax um næstu helgi. 5. apríl 2017 10:52