Enski boltinn

Guardiola: Heppinn að þjálfa þessa stráka

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guardiola var ánægður með sína menn þrátt fyrir tap.
Guardiola var ánægður með sína menn þrátt fyrir tap. vísir/getty
Þrátt fyrir tapið á Stamford Bridge í kvöld var Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, afar ánægður með sína menn í leiknum.

„Það er heiður að vera með þessa leikmenn sem ég er með. Við komum á Stamford Bridge og spiluðum okkar leik. Ég er heppinn að þjálfa þessa stráka,“ sagði Guardiola sem horfði upp á sitt lið tapa sjötta deildarleiknum í vetur.

Guardiola býst við miklu af City-liðinu í framtíðinni.

„Þetta er jákvætt fyrir framtíðina. Ég er bjartsýnn. Þetta hefur verið svona allt tímabilið en við erum ekki nógu góðir í vítateigunum,“ sagði Guardiola.

„Við sköpuðum nóg af færum til að skora. Það er okkar vandamál. En mínir menn spila á ákveðinn hátt og þess vegna vil ég vera hérna og hjálpa Manchester City á næstu árum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×