Lífið

Tíu bestu sjónvarpslæknarnir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessir klikkuðu bara ekki.
Þessir klikkuðu bara ekki.
Læknaþættir hafa í gegnum tíðina verið gríðarlega vinsælir. Þættir á borð við ER, Scrubs, Greys Anatomy og margir fleiri.

Vefsíðan Mashable hefur núna tekið saman tíu bestu sjónvarpslæknanna, en þeir eiga það flestir sameiginlegt að vera reglulegir gestir inni í stofu fólks um allan heim, eða voru það í það minnsta.

Hér að neðan má sjá listann í heild sinni:

Leo Spaceman - 30 Rock

Dr. Spaceman er líklega versti læknirinn á listanumi en hann er sennilega sá fyndnasti.



Læknirinn í Arrested Development

Þessi var alltaf þekktur fyrir það að gefa fólki slæmar fréttir á hræðilegan máta. 





Hawkeye er einn sá vinsælasti.
Hawkeye - M*A*S*H

Einn sá vinsælasti í sjónvarpssögunni en Alan Alda lék Hawkeye Pierce sem starfaði sem herlæknir í þáttunum M*A*S*H en þættirnir voru í loftinu frá 1972-1983.





Clooney komst fyrst á sjónarsviðið í þáttunumi E.R.
Doug Ross - E.R.

George Clooney fór með hlutverk Doug Ross í þáttunum E.R. sem gerðust á bráðmóttökunni í Chicago. Ross hefur alltaf þótt sá allra myndalegasti.



Cox á góðri stundu.
Perry Cox - Scrubs

Nokkuð dónalegur á sjúkrahúsinu en átti sín augnablik á spítalanum.

Shephard.
Jack Shephard - Lost

Frábær læknir sem lét verkin heldur betur tala. Hann lifði af flugslys og reyndi að hjálpa öðrum í kjölfarið.

Yang er ekki allra.
Cristina Yang - Grey's Anatomy

Umdeildur karakter en mjög hæfileikaríkur læknir. Hún er hætt á sjúkrahúsinu í Seattle og kemur ekki lengur fram í Greys Anatomy. Gríðarlega hæfileika ríkur skurðlæknir.

House er topplæknir.
Gregory House - House

Hugh Laurie fór á kostum sem House sem var oft á tíðum hrokafullur og leiðinlegur læknir en náði alltaf að bjarga málunum.

Lahari
Mindy Lahiri - The Mindy Project

The Mindy Project fjallaði um konu sem var að reyna finna sjálfan sig. Mindy starfaði sem læknir og lenti oft í vandræðum í einkalífinu.

Dr. Akopian - Crazy Ex-Girlfriend






Fleiri fréttir

Sjá meira


×