Lífið

Pétur í harðri drykkjukeppni við ástsælustu fyllibyttu Suður-Kóreu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pétur stóð sig vel.
Pétur stóð sig vel.
Fyrsti þátturinn af Asíska draumnum var á dagskrá Stöðvar 2 síðastliðið föstudagskvöld og fór þáttaröðin heldur betur vel af stað.

Þátturinn er ein stór keppni þar sem Steindi Jr. og Auðunn Blöndal keppa á móti Sveppa og Pétri Jóhanni í stigasöfnun og þurfa þeir að fara í gegnum allskonar þrautir til að ná í stig.

Í fyrsta þættinum mátti sjá atriði sem vakti athygli en þá varð Pétur Jóhann að fara í drykkjukeppni við eina ástsælustu fyllibyttu Suður-Kóreu, Mr. Lee.

Pétur mætti fullorðnum manni í drykkjukeppni inni í tjaldi og var aðeins boðið upp á

hrísgrjónavín. Sá sem myndi drekka meira, færi með sigur af hólmi.

Annar þátturinn af Asíska drauminum er á dagskrá Stöðvar 2 annað kvöld og hefst hann klukkan 19:45.

Hér að neðan má sjá hvernig keppnin fór.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×