Formúla 1

Hamilton: Ferrari bílarnir virkuðu hraðir í dag

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Þrír hröðustu menn dagsins: Sebastian Vettel, Lewis Hamilton og Valtteri Bottas.
Þrír hröðustu menn dagsins: Sebastian Vettel, Lewis Hamilton og Valtteri Bottas. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í dag. Hann náði sínum sjötta ráspól í röð, sem jafnar met Ayrton Senna, átrúnaðargoðs Hamilton. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

„Þetta hefur verið áhugaverð helgi, því það hefur verið lítið um æfingar. Ferrari bílarnir virkuðu svo hraðir í dag. Mér tókst að bæta mig í hverri lotu. Ég er mjög ánægður að hafa Ferrari að keppa við, það er nauðsynlegt að hækka staðalinn í hvert skipti sem maður fer af stað,“ sagði Hamilton.

„Morgundagurinn verður óvenjulegur dagur. Mér skilst það eigi að rigna og ég hef ekki ekið neitt á regndekkjunum í ár. Það verður afar áhugaverð reynsla fyrir mig. Hvernig sem aðstæður verða þá verður munurinn lítill á milli okkar og Ferrari,“ bætti Hamilton við.

„Ég var nokkuð sáttur við minn hraðasta hring. Ég var kannski gunga á bremsunum í síðustu beygjunni, það dugði til að vera fljótari en Valtteri [Bottas]. Ég veit ekki hvort við erum með betri kepnisbíl en tímatöku bíl,“ sagði Sebastian Vettel sem varð annar á Ferrari.

„Það eru margir staðir hér til að tapa einum þúsundasta úr sekúndu sem var munurinn í Sebastian. Veðrið gæti spilað stóra rullu á morgun,“ sagði Valtteri Bottas sem varð þriðji á Mercedes.

Max Verstappen var á fjórum strokkum í dag í stað sex. Hann sagði að hann vildi bara reyna að njóta akstursins á morgun og reyna að taka fram úr.Vísir/Getty
„Einn þúsundasti er 5,9 sentimetrar hér. Við erum að leita í myrkri að réttri uppstillingu þegar við fáum nánast engar æfingar og svo eru aðstæðurnar allt aðrar, 10 gráðum kaldara og líklegast blautt. Þannig að það verður áhugavert að sjá hvernig keppnin þróast á morgun,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

„Ég er frekar vonsvikinn. Við vorum í ágætum málum í morgun á æfingunni en við vorum af einhverjum ástæðum lengi að komast af stað og tilfinningin í bílnum hvarf þegar komið var í tímatökuna,“ sagði Stoffel Vandoorne sem endaði 16. á McLaren bílnum í tímatökunni.

„Ég held að hringurinn hafi verið nógu góður til að komast í aðra lotu en svo vissi ég að það var eitthvað að þegar ég gat ekki opnað afturvænginn á fyrri beinakaflanum. Þá heyrði ég að það væri eitthvað að í síðustu beygjunni og ég hægði nægilega á mér, svo ég held að dómararnir finni ekkert að þessu,“ sagði Jolyon Palmer sem varð 18. á Renault bílnum.

„Ég er í lagi, ég var að leita takmarkana bílsins og ég fór aðeins út á gervigrasið og það endaði svona. Ég þarf að biðja liðið afsökunar og vona að morgundagurinn verði betri,“ sagði Antonio Giovinazzi sem endaði 15. í tímatökunni þrátt fyrir að hafa sett Sauber bílinn á varnarvegg í síðustu beygju brautarinnar.

„Þetta var í fyrsta skipti sem ég var á pari við Sergio [Perez] en gat ekki klárað á fullum krafti út af gulum flöggum [vegna Giovinazzi],“ sagði Esteban Ocon sam varð 20. í tímatökunni á Force India bílnum.


Tengdar fréttir

Alonso: Aflskorturinn bara eitt af vandamálum Honda

Fernando Alonso segir að hann hafi þurft að setja met í sparakstri í Ástralíu til að sjá fram á að bíllinn kæmist í endamark. Aflskortur er ekki eina vandamál Honda vélarinnar.

Lewis Hamilton á ráspól í Kína

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í dag í tímatökunni fyrir kínverska kappaksturinn. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari og Valtteri Bottas á Mercedes varð þriðji, einum þúsundasta á eftir Vettel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×