Sport

Núna small þetta og þá unnum við

Telma Tómasson skrifar
Hulda var kampakát þegar gullið var fast í hendi.
Hulda var kampakát þegar gullið var fast í hendi. Stöð 2 Sport
Hulda Gústafsdóttir, íþróttaknapi ársins 2016, sigraði af öryggi keppni í fimmgangi í Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum, sem fram fór í Samskipahöllinni í gærkvöldi.  Hulda sat Birki frá Vatni, en þau eru engir nýgræðingar í greininni hafa margoft áður verið í úrslitum í fimmgangi í Meistaradeildinni, unnið marga sigra aðra og urðu íslandsmeistarar í þessari keppnisgrein í fyrra.

„Við höfum verið í úrslitum hérna fjórum sinnum, alltaf eitthvað pínulítið verið að en núna small þetta og þá unnum við og það er svo gaman,“ sagði Hulda kampakát þegar gullið var fast í hendi.

„Hann vinnur á því, hann Birkir, að vera jafn og hefur ekki oft verið að gera mistök, en þau eru þó dýrkeypt þegar þau koma. Í dag voru þau engin og við vonum að það verði svona til framtíðar,“ bætti Hulda við og sagðist stefna á úrtöku með Birki fyrir Heimsmeistaramót í hestaíþróttum sem fram fer í Hollandi í sumar.

Það var hart barist um efstu sætin í Samskipahöllinni í gærkvöldi, þar voru stór nöfn á ráslista og fyrirséð að ekkert væri fast í hendi fyrr en öllu væri lokið. Hulda kom önnur efst inn í A-úrslitin eftir forkeppnina og gerði vel í öllum fyrstu fjórum sýningaratriðunum, tölti, brokki, feti og stökki.

Áður en kom að skeiðinu – lokaatriðinu - var Hulda jöfn Jakobi Svavari Sigurðssyni í fyrsta til öðru sæti. Skeiðið réð því úrslitum og reyndist Hulda vera talsvert hærri en Jakob Svavar fyrir það atriði sem tryggði henni efsta sætið. Lokaeinkunn Huldu og Birkis frá Vatni varð 7.43.

Fimmgangskeppni í Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum var sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og er meðfylgjandi myndskeið af sýningu Huldu Gústafsdóttur í forkeppninni.

Niðurstöður A-úrslita í fimmgangi voru eftirfarandi:

1. Hulda Gústafsdóttir - Birkir frá Vatni - 7.43

2. Guðmundur Friðrik Björgvinsson - Sjóður frá Kirkjubæ - 7.21

3. Jakob Svavar Sigurðsson - Skýr frá Skálakoti - 7.10

4. Þórarinn Ragnarsson - Hildingur frá Bergi - 7.02

5. Árni Björn Pálsson - Oddur frá Breiðholti í Flóa 7.00

6. Daníel Jónsson - Þór frá Votumýri 2 - 6.98

7. Teitur Árnason - Hafsteinn frá Vakurstöðum - 6.38




Fleiri fréttir

Sjá meira


×