Skoðun

Þegar Volkswagen varð verðmætasta félag í heimi

Björn Berg Gunnarsson skrifar
Hvernig gat það gerst að Volks­wagen stakk mun stærri fyrirtæki af og varð, í nokkrar mínútur, verðmætasta skráða hlutafélag heims?

Í lok október 2008 ríkti mikil óvissa í alþjóðlegum kauphöllum. Fjárfestar töpuðu flestir miklu og vegna almennra verðlækkana á mörkuðum reyndist skortsala mörgum vel. Þeir sem skortseldu hlutabréf í Volkswagen eru þó áberandi undantekning en þeir hrundu óafvitandi af stað atburðarás sem verður að teljast lyginni líkust.

Skortsalar fóru á flug

Skortsala er samkomulag tveggja aðila þar sem fjárfestir lánar öðrum verðbréf sín gegn gjaldi. Viðtakandinn selur bréfin á markaði og treystir að verð þeirra hafi lækkað þegar hann þarf að kaupa bréfin að nýju og komið er að því að skila þeim.

Fjölmargir stórir fjárfestar töldu hlutabréf Volkswagen allt of dýr og sáu tækifæri til skortsölu. Einn stærsti hluthafi félagsins, Porsche, hóf þá að bæta við stöðu sína og kaupa bréf í stórum stíl. Þegar tilkynnt var að eign Porsche væri orðin 74% alls hlutafjár fengu skortsalarnir fyrir hjartað. Þar sem önnur 20% voru í eigu hins opinbera var ljóst að afar lítið framboð var á hlutabréfum og erfitt gæti reynst að kaupa bréf til baka og skila. Barist var um þessi fáu bréf sem eftir voru og verð þeirra fór á fleygiferð. Á örfáum dögum fimmfaldaðist verð Volkswagen og í nokkrar mínútur 28. október 2008 varð markaðsverðmætið meira en Exxon Mobil og Volkswagen þar með verðmætasta félag heims, í boði skortsalanna og óvæntra viðskipta Porsche.

Sprakk í andlit fjárfesta

Að sjálfsögðu entist þetta ekki og fljótlega var verðið aftur orðið eðlilegt eða því sem næst.

Skortsalarnir töpuðu heilmiklu á þessu heimsmeti og lýsti talsmaður vogunarsjóðs viðskiptunum sem áhættulítilli fjárfestingu sem breyttist í kjarnorkusprengju og sprakk í andlit þeirra.

Miklar breytingar hafa verið gerðar á regluverki er snertir afleiðuviðskipti frá 2008, meðal annars til að lágmarka líkurnar á að slíkir atburðir geti endurtekið sig. Hluthafar og skortsalar Volkswagen geta því andað örlítið léttar, nema auðvitað að einhver sé að segja ósatt um mengun dísilvéla.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×