Forsetinn boðar stórfelldan niðurskurð á flestum sviðum Guðsteinn Bjarnason skrifar 17. mars 2017 07:00 Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur kynnt fyrsta fjárlagafrumvarp sitt, með stórfelldum niðurskurði á ríkisstofnunum. vísir/epa
Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði fram fyrsta fjárlagafrumvarp sitt í gær. Þar er boðaður stórfelldur niðurskurður, sem þó er engan veginn víst að Bandaríkjaþing muni fallast á í óbreyttri mynd. Repúblikanar, flokksfélagar Trumps, yrðu vafalaust tregir til að fallast á sumar hugmyndirnar og demókratar láta sér vart detta það í hug. Mesta athygli vekur að umhverfisstofnun Bandaríkjanna á að skera niður um 31 prósent. Þá missir utanríkisráðuneytið 29 prósent, landbúnaðarráðuneytið 21 prósent, vinnumálaráðuneytið sömuleiðis 21 prósent og dómsmálaráðuneytið 20 prósent. Einnig verður skorið hressilega niður fjármagn til heilbrigðismála, viðskipta, menntamála, samgöngumála og húsnæðismála. Þá verður algerlega hætt að veita fé í ýmsar smærri stofnanir, þar á meðal stofnanir sem hafa gegnt mikilvægu hlutverki við að styrkja menningu og listir af ýmsu tagi. Framlög til þessara stofnana hafa samt verið sáralítil í hlutfalli við heildarútgjöld ríkisins. Hins vegar á að auka framlög til varnarmálaráðuneytisins um 10 prósent og heimavarnarráðuneytið fær sjö prósenta aukningu. Og landamæragirðingin, sem á að reisa milli Mexíkó og Bandaríkjanna, er komin á blað í þessu fjárlagafrumvarpi. Til hennar á að verja 2,6 milljörðum dala, en það samsvarar nærri 2.900 milljörðum króna. Auk þess er ætlunin að ráða 1.700 manns til að sinna landamæragæslu, saksóknarastörfum og dómarastörfum í tengslum við baráttu Trumps gegn ólöglegum – eða skilríkjalausum – innflytjendum. Þá er hugmyndin að verja 171 milljón dala til að fjölga plássum til skammtímavistunar í fangelsum. Þar á að hýsa ólöglega innflytjendur, sem hafa framið afbrot, á meðan réttarhalda og dómsuppkvaðningar er beðið. Afar skiptar skoðanir eru meðal Repúblikana á þingi um ágæti þessara tillagna. Flokkurinn er jafnvel sagður skiptast í þrjár meginfylkingar hvað þetta varðar. Öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey Graham og fylgismenn hans eru til að mynda lítt hrifnir af því að skera niður framlög til Sameinuðu þjóðanna. Paul Ryan, þingforseti fulltrúadeildar, leggur mesta áherslu á breytingar á heilbrigðistryggingum En John McCain vill reyndar ganga enn lengra en Trump við uppbyggingu hersins. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Erlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Sjá meira