Fótbolti

Albert með bæði mörk Jong PSV í sigri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Albert er kominn með sex mörk í hollensku B-deildinni.
Albert er kominn með sex mörk í hollensku B-deildinni. vísir/getty
Albert Guðmundsson skoraði bæði mörk Jong PSV þegar liðið vann 2-0 sigur á Breda í hollensku B-deildinni í kvöld.

Þetta var fjórði sigur Jong PSV í röð en liðið er í 5. sæti deildarinnar.

Albert, sem spilaði sinn fyrsta A-landsleik í síðasta mánuði, kom Jong PSV yfir á 22. mínútu. Hann bætti svo öðru marki við á 58. mínútu.

Albert er nú kominn með sex mörk í 22 deildarleikjum í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×