Innlent

Ferðamannastaðir nánast tómir

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Forvarnir björgunarsveita og Vegagerðarinnar virðast hafa skilað árangri, segir Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Sendar voru út viðvaranir á þrjú þúsund viðbragðsaðila í gær vegna veðursins sem nú gengur yfir landið. Þorsteinn segir ferðamannastaði flesta nánast tóma.

„Viðbúnaður okkar hófst í raun og veru í gær þegar við sendum upplýsingar á þrjú þúsund ferðaþjónustuaðila til að vara við því sem myndi ganga yfir í dag. Það virðist hafa borið árangur,“ segir Þorsteinn í samtali við fréttastofu.

„Við erum að heyra það að ferðamannastaðir hérna í nágrenni höfuðborgarsvæðisins séu nánast tómir, þannig að þessi forvörn hefur sannarlega skilað sér. Eins líka hjá Vegagerðinni þegar þeir voru að tilkynna um fyrirhugaðar lokaðir í gær þannig að þetta hefur haft þau áhrif að fólk er minna á ferðinni en ella.“

Þorsteinn segir fokútköllin hafa byrjað strax í morgun. Björgunarsveitir séu allar í viðbragðsstöðu og margar hverjar þegar komnar út. „Svo sjáum við bara til hvernig þetta verður eftir hádegi því þá á veðrið að vera verst hérna á höfuðborgarsvæðinu. Svo á heldur að ganga niður svona um eða upp úr miðjum degi en okkar fólk er á vaktinni til að hjálpa ef kallið kemur.“

Líkt og Þorsteinn bendir á fer veðrið nú ört versnandi á suðvesturlandi. Vitlaust veður hefur verið í dag og til að mynda fór stór rútubíll með 57 farþega og ökumann út af þjóðveginum vestan við Vík í Mýrdal um klukkan hálf tíu, en engan sakaði.

Þá lentu tvær rútur í erfiðleikum á Kjalarnesi á tíunda tímanum en komust klakklaust að Klébergsskóla þar sem Rauði krossinn hefur opnað fjöldahjálparstöð. Jón Brynjar Birgisson frá Rauða krossinum segir að á annað hundrað manns séu þegar komnir í stöðina, farþegarnir úr rútunum og erlendir ferðamenn á bílaleigubílum, en engin slys hafa orðið.

Vegagerðin hefur verið að loka vegum í morgun  og fleiri vegum verður lokað eftir því sem á daginn líður. Þegar er búið að loka Hellisheiði, veginum undir Eyjafjöllum Lyngdalsheiði, um Kjalarnes og Mosfellsheiði og nú í hádeginu var Reykjanesbraut einnig lokað en þar er orðið vonsku veður.

Holtavörðuheiði og Bröttubrekku verður líklega lokað um klukkan þrjú  og klukkan fjögur má búast við að Mývatns- og Möðrudalsöræfum verði lokað, sömuleiðis Fjarðarheiði, Fagradal og Oddsskarði. Innanlandsflugi hefur verið aflýst í dag og Herjólfur hefur ekki siglt á milli  lands og Eyja.  Síðdegis á verulega að draga úr vindi suðvestanlands og upp úr miðnætti er búist við að veðrið gangi norðaustur af landinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×