Bílar

Arnold Schwarzenegger fær rafdrifinn G-Class

Finnur Thorlacius skrifar
Kraftatröllið og stjórnmálamaðurinn austurríski, Arnold Schwarzenegger, hefur nú fengið afhentan rafmagnsdrifinn Mercedes Benz G-Class, eða Geländewagen eins og hann er stundum nefndur. Í þessum bíl hefur verið skipt út brunavélinni fyrir rafmagnsmótorum og stórum rafhlöðum og því mengar þessi bíll ekki neitt.

Það var Kreisel Electric fyrirtækið sem sá um að koma rafmagnsdrifrásinni fyrir í bílnum. Schwarzenegger hefur ekki þurft að fórna aflinu í bílnum með þessum umskiptum því í stað 245 hestafla dísilvélar er komin 483 hestfla rafmagnsdrifrás.

Bílnum sem breytt var er af gerðinni Mercedes Benz G 350 d, en undir húddinu og í stað eldsneytistanksins eru nú komnar öflugar rafhlöður. Engu af innanrými bílsins var fórnað til að koma nýju drifrásinni fyrir og bíllinn er alveg jafn hæfur til torfæruaksturs, jafnvel hæfari sökum meira afls.

Bíllinn er nú aðeins 5,6 sekúndur í 100 km hraða og meira en 3 sekúndum sneggri en með dísilvélinni. Hann er með 300 km drægi, 183 km hámarkshraða og hlaða má rafhlöður bílsins að 80% marki á aðeins 25 mínútum.

Á myndinni er Arnold Schwarzenegger að taka á móti bílnum í austurríska skíðabænum Kitzbühel. Schwarzenegger ætlar að flytja þennan bíl með sér til Kaliforníu, þar sem hann á heima og njóta eiginleika hans þar, þó svo austurrísk skíðasvæði séu ef til vill heppilegri til slíkra prófana. Sjá má myndskeið um tilurð þessa rafmagnsdrifna G-Class frá hendi Kreisel.

Kassalaga en flottur G-Class.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×