Formúla 1

Valtteri Bottas kynntur sem ökumaður Mercedes

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Valtteri Bottas var kynntur til leiks sem ökumaður Mercedes liðsins í dag.
Valtteri Bottas var kynntur til leiks sem ökumaður Mercedes liðsins í dag. Vísir/Getty
Mercedes hefur staðfest að Valtteri Bottas mun aka Formúlu 1 bíl liðsins á komandi tímabili. Bottas verður þar með liðsfélagi þrefalda heimsmeistarans Lewis Hamilton.

Eitt verst geymda leyndarmál Formúlu 1 hefur því komið á daginn. Bottas fer til Mercedes og gamli liðsfélagi hans hjá Williams, Felipe Massa, hættir við að setjast í helgan stein og ekur fyrir Williams á næsta tímabili.

„Þetta eru mjög spennandi tímar fyrir mig,“ sagði Bottas.

„Ég held að það muni taka tíma að átta sig á því hvað er að gerast. Þetta er draumur að rætast að aka fyrir lið með svona mikla sögu og lið sem hefur verið svona drottnandi undanfarin ár.“

„Ég er stoltur af því að verða hluti af liðinu og þakklátur öllum hjá Mercedes fyrir traustið á hæfileikum mínum og þessu tækifæri.“

Bottas hefur nú einstakt tækifæri til að sýna hvað í honum býr og hvort hann geti staðið í þeim bestu og það verður sérstaklega áhugavert að sjá hann aka í sama liði og Hamilton sem margir gárungar kalla einn þann besta í sögunni.


Tengdar fréttir

Pascal Wehrlein til Sauber

Varaökumaður Mercedes liðsins og keppnisökumaður Manor liðsins, Pascal Wehrlein hefur gengið til liðs við Sauber liðið. Ökumannsmarkaðurinn er að skýrast eftir brotthvarf heimsmeistarans Nico Rosberg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×