Árásin í Gerðunum: Barði mág sinn ítrekað í höfuðið með hamri Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 2. janúar 2017 10:23 Maðurinn sem fyrir árásinni varð er marghöfuðkúpubrotinn og liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild. vísir/gva
Maðurinn sem varð fyrir líkamsárás í Gerðunum í Reykjavík á nýársnótt liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans, en heimildir fréttastofu herma að árásarmaðurinn hafi barið hann ítrekað í höfuðið með hamri. Árásarmaðurinn hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna alvarleika árásarinnar. Mennirnir tveir eru mágar, eftir því sem fréttastofa kemst næst. Ekki er vitað hvað árásarmanninum gekk til né hvort þeir hafi átt í einhverjum deilum umrætt kvöld. Árásin átti sér stað utandyra rétt eftir miðnætti. Nágranni kom að fórnarlambinu þar sem það lá í götunni og var afar illa leikið. Maðurinn er marghöfuðkúpubrotinn en ekki talinn í lífshættu. Lögregla og sjúkralið voru í kjölfarið kölluð til og var gerandinn handtekinn á staðnum. Hann var yfirheyrður og leiddur fyrir dómara um hádegisbil í gær, þar sem hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. janúar næstkomandi. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar, segir að árásin hafi verið svo hættuleg að nauðsynlegt hafi verið að fara fram á svo langt gæsluvarðhald. Grímur segir afstöðu árásarmannsins til málsins ekki liggja fyrir, þ.e hvort hann játi sök eða neiti. Aðspurður segir hann að ekki sé búið að yfirheyra hann í dag en að nú sé unnið að því að safna gögnum í málinu.
Tengdar fréttir Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir alvarlega líkamsárás Tilkynnt var um árásina snemma í nótt og var maðurinn úrskurðaður í langt gæsluvarðhald. 1. janúar 2017 18:35 Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Fleiri fréttir Virðast ætla að opna Kringluna á þriðjudaginn Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Sjá meira
Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir alvarlega líkamsárás Tilkynnt var um árásina snemma í nótt og var maðurinn úrskurðaður í langt gæsluvarðhald. 1. janúar 2017 18:35