Erlent

Erlendar fréttamyndir ársins 2016

Samúel Karl Ólason skrifar
Það var mikið um að vera á árinu sem nú er að líða.
Það var mikið um að vera á árinu sem nú er að líða.
Árið sem senn er á enda var síður en svo viðburðasnautt fréttaár á erlendum vettvangi. Ljósmyndarar fylgdust vel með og fönguðu sögulega viðburði ársins á mynd. Hvort sem það voru átök, björgunarstörf, íþróttaviðburðir eða nýjustu vendingar stjórnmálanna.

Myndaveiturnar AFP og Getty hafa tekið saman helstu myndir ársins, en sjá má bróðurpart þeirra hér að neðan. Við hverja mynd stendur nánar af hverju myndin er.

Gestir Tazaungdaing ljósa hátíðarinnar í Mjanmar í nóvember skýla sér eftir að flugeldar, sem bornir voru af loftbelg, sprungu áður en loftbelgurinn náði nægilegri hæð.Vísir/AFP
Michael Phelps keppir í hundrað metra flugsundi á Ólympíuleikunum í Ríó.Vísir/AFP
Ibrahim Hamadtou keppir fyrir Egyptalands í borðtennis á Ólympíuleikum fatlaðra í Ríó.Vísir/AFP
Usain Bolt fagnar með aðdáendum eftir að hann vann 200 metra hlaup Ólympíuleikanna.Vísir/AFP
Myndband af hinum fjögurra ára gamla Omran fór víða á árinu. Myndbandið var tekið þar sem Omran sat í sjúkrabíl eftir að hafa verið bjargað úr rústum húss sem hrundi eftir loftárás í Aleppo. Eldri bróðir hans lést.Vísir/AFP
Meðlimur íslamistasamtakanna Jaysh al-Islam hleypur undan skotum leyniskyttu í þorpinu Tal al-Siwan nærri Damascus.Vísir/AFP
Íbúar Aleppo yfirgáfu heimili sín eftir loftárásir.Vísir/AFP
Meðlimir Free Syrian Army berjast gegn Íslamska ríkinu í þorpinu Yahmoul norður af Aleppo.Vísir/AFP
Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, mætir hér til Colorado Springs í kosningabaráttunni fyrr á árinu.Vísir/AFP
Trump fagnar hér sigri í kosningunum.Vísir/AFP
Hillary Clinton tapaði í forsetakosningunum í Bandaríkjunum, þrátt fyrir að hafa fengið tæplega þremur milljónum fleiri atkvæði en Donald Trump.Vísir/AFP
Leyniskyttur skjóta á vígamenn Íslamska ríkisins í Sirte í Líbíu.Vísir/AFP
Íbúar Amatrice á Ítalíu fara í gegnum rústir húsa sem hrundu í öflugum jarðskjálfta sem skall á í ágúst.Vísir/AFP
Franskur lögregluþjónn stendur í ljósum logum í umfangsmiklum mótmælum á París í september. Fjöldi fólks mótmælti umdeildu lagafrumvarpi um vinnulöggjöf.Vísir/AFP
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Michelle Bachelet, forseti Chile, og Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, við undirritun friðarsáttmála stjórnvalda í Kólumbíu og FARC uppreisnarmanna.Vísir/AFP
Til átaka kom á milli lögreglu og stúdenta í Suður-Afríku í október. Stúdentar mótmæltu hækkun skólagjalda og fóru þeir fram á ókeypis menntun fyrir alla.Vísir/AFP
Meðlimir Colla Vella dels Xiquets mynda „mennskan turn“ í keppni í mennskum turnum á Spáni í október.Vísir/AFP
Flótta- og farandsfólk reynir að koma barni úr sjónum á meðan þau bíða björgunar í Miðjarðarhafinu.Vísir/AFP
Fjölmörgum hefur verið bjargað af þétt setnum og lélegum bátum sem hafa verið sendir út á Miðjarðarhafið frá Líbíu.Vísir/AFP
Fellibylurinn Matthew olli miklum usla í Karabíuhafinu í haust. Hér má sjá hvernig hann jós grjóti á land á Kúbu.Vísir/AFP
Matthew olli einnig miklu tjóni á Haítí.Vísir/AFP
Tveir menn í Mosul syrgja 15 ára dreng sem lést í stórskotaliðsárás í borginni. Írakski herinn og bandamenn yfirvalda í Baghdad berjast nú við Íslamska ríkið um borgina.Vísir/AFP
Íbúar þorpsins Tall Abtah snúa aftur eftir að vígamenn Íslamska ríkisins hafa verið reknir frá þorpinu.Vísir/AFP
Tugir þúsunda hafa yfirgefið heimili sín í Mosul vegna átaka þar.Vísir/AFP
Tyrkneska strandgæslan kemur flóttamönnum til bjargar eftir að bátur þeirra sökk.Vísir/GETTY
Ungur drengur hjólar framhjá olíulindum nærri Mosul. Vígamenn Íslamska ríkisins kveiktu í lindunum þegar þeir hörfuðu frá svæðinu.Vísir/Getty
Gífurlegar skemmdir urðu á bænum Amatrice og hundruð létu lífið þegar jarðskjálfti skall á Ítalíu í sumar.Vísir/Getty
Þúsundiri hafa látið lífið í „stríði“ Rodrigo Duterte, foresta Filippseyja, gegn fíkniefnum. Neytendur og salar eru skotnir til bana af lögreglu og sjálfskipuðum lögregluþjónum.Vísir/Getty
Oscar Pistorius var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að skjóta kærustu sína Reevu Steinkamp til bana árið 2013.Vísir/Getty
Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið á árinu.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×