Innlent

Þau eru tilnefnd sem maður ársins 2016

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tæplega átta hundruð tilnefningar bárust en kosið er á milli tíu aðila.
Tæplega átta hundruð tilnefningar bárust en kosið er á milli tíu aðila.
Vísir og Bylgjan standa fyrir vali á Manni ársins 2016 og geta lesendur nú tekið þátt í að velja þann sem þeim þykir eiga nafnbótina skilið. Tæplega átta hundrað tilnefningar bárust í gegnum vefinn og í símatíma Reykjavík Síðdegis.

Þorgeir, Kristófer og Bragi í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og blaðamenn Vísis fóru yfir tilnefningarnar og rökstuðninginn sem þeim fylgdi. Nú er búið að yfirfara þær og ljóst hvaða tíu aðilar berjast um titilinn. Það eru, í engri sérstakri röð:

 

  • Landsliðshópurinn í Frakklandi
  • Sema Erla Serdar
  • Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
  • Benóný Ásgrímsson
  • Björgunarsveitirnar
  • Sigþrúður Guðmundsdóttir
  • Kári Stefánsson
  • Guðni Th. Jóhannesson
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
  • Hrafnhildur Lúthersdóttir


Þú getur tekið þátt í valinu með því að fara inn á visir.is/madurarsins og láta þér líka við – setja „like“ á – þann sem þú vilt velja. Þar er hægt að lesa rökstuðning og meira um þá sem tilnefndir eru.



Hægt er að velja eins marga og þú vilt en aðeins er hægt að greiða hverjum og einum eitt atkvæði. Til að taka þátt þarftu að vera skráð(ur) inn á Facebook.

Tilkynnt verður um niðurstöðuna í þættinum Reykjavík árdegis á Bylgjunni á gamlársdag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×