Innlent

Móðir í Grafarvogi fraus þegar trúðsandlit birtist henni í glugganum

Birgir Olgeirsson skrifar
Manneskjur með trúðsgrímur hafa hrellt íbúa Grafarvogs yfir helgina og hafa meðal annars ónáðað börn í hverfinu.
Manneskjur með trúðsgrímur hafa hrellt íbúa Grafarvogs yfir helgina og hafa meðal annars ónáðað börn í hverfinu. Vísir
„Ég bara fraus,“ segir Nanna Dröfn Harðardóttir, íbúi í Grafarvogi, sem varð fyrir þeirri óþægilegu lífsreynslu að manneskja með óhugnanlega trúðsrgrímu bankaði á glugga á heimili hennar í gærkvöldi og starði inn í húsið. 

„Hann byrjaði á því að banka, Ég sá ekki neitt. Ég sat við gluggann og var að læra. Svo heyri ég aftur dynk og þá birtist hann við gluggann og starir heillengi inn. Svo hverfur hann,“ segir Nanna í samtali við Vísir um málið en niðamyrkur var úti þegar þetta átti sér stað og atvikið því frekar ógnvænlegt.

Fjallað var fyrst um trúðafaraldurinn á vef Vísis í morgun en þar er rakið hvert upphaf þessa æðis er en forvitnir geta fræðst um það betur með því að smella hér. Í stuttu máli hefur trúðafaraldur farið yfir heiminn á síðustu þremur mánuðum með miklum öfgum, og virðist hann vera að skjóta rótum hér á landi. 

Spurð hvernig henni varð við segir hún tilfinninguna hafa verið afar óþægilega. „Maður bara fraus. Ég bara vona að hann komi ekki aftur. Ég er með yngri börn og þær hefðu dáið úr hræðslu. En sem betur fer urðu þær ekki vitni að þessu. Þær hefðu dáið úr hræðslu.“

Hún segist hafa heyrt af því að manneskja með óhugnanlega trúðsgrímu hafi einnig ónáðað fólk neðar í götunni hennar og verið að ónáða börn.

Valgarður Valgarðsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöðinni á Vínlandsleið, segir lögregluna hafa málið til rannsóknar en tilkynningar um hrollvekjandi trúða bárust henni á föstudagskvöld og sunnudagskvöld.

„Það er grunur um að þetta séu ungir piltar,“ segir Valgarður og nefnir að talið sé að þeir séu í efstu bekkjum grunnskóla. „Þeir hafa verið að angra fólkið í hverfinu með þessu.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×