Íslenski boltinn

Damir framlengir við Breiðablik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Damir hefur leikið með Breiðabliki undanfarin þrjú tímabil.
Damir hefur leikið með Breiðabliki undanfarin þrjú tímabil. vísir/hanna
Damir Muminovic skrifaði í dag undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablik. Þetta kemur fram á Blikar.is, stuðningsmannavef Breiðabliks.

Damir, sem er 26 ára, hefur leikið með Blikum undanfarin þrjú tímabil og verið einn besti varnarmaður Pepsi-deildarinnar á þeim tíma. Hann hefur leikið 56 deildarleiki fyrir Breiðablik og skorað fimm mörk.

Damir er uppalinn hjá hinu Kópavogsliðinu, HK, en hann hefur einnig leikið með Leikni R. og Víkingi Ó.

Damir lék 20 leiki fyrir Breiðablik í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili. Hann var í 3. sæti yfir bestu leikmenn deildarinnar í einkunnagjöf Fréttablaðsins og Vísis, og sá besti í fyrri umferðinni.


Tengdar fréttir

Verið góður en vill gera betur

Damir Muminovic, miðvörður Breiðabliks, er besti leikmaður fyrri umferðar Pepsi-deildar karla samkvæmt einkunnagjöf Fréttablaðsins. Hann er ágætlega sáttur við gengið hingað til en segist eiga mikið inni.

Draumur að hafa Doumbia

Kassim Doumbia, miðvörður Íslandsmeistara FH, er leikmaður ársins í Pepsi-deild karla hjá Fréttablaðinu en hann var efstur í einkunnagjöf Fréttablaðsins og Vísis í sumar. FH-ingar eiga fimm menn á topp tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×