Sport

Rocky heilsaði upp á Pacmanninn og stappaði í hann stálinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stallone og Pacquiao á góðri stund.
Stallone og Pacquiao á góðri stund. vísir/getty
Hnefaleikakappinn Manny Pacquiao undirbýr sig nú af kappi fyrir bardagann við Jessie Vargas 5. nóvember næstkomandi.

Pacquiao æfir núna í Wild Card Gym í Hollywood en Filippseyingurinn fékk góðan gest í heimsókn á dögunum, þegar sjálfur Sylvester Stallone heiðraði hann með nærveru sinni.

Rocky Balboa, sem Stallone lék svo eftirminnilega í sjö kvikmyndum, átti nokkrar endurkomur í hringinn og sömu sögu er að segja af hinum 37 ára gamla Pacquiao.

Hann tilkynnti að hann væri hættur eftir að hafa unnið Timothy Bradley í apríl síðastliðnum en Pacquiao hefur nú tekið hanskana af hillunni, aðallega af því að hann þarf á peningunum að halda.

Pacquiao bíður erfitt verkefni gegn veltivigtarmeistaranum Vargas sem hefur unnið 27 af 28 bardögum sínum á atvinnumannaferlinum.

Real Life Rocky with Reel Life Rocky! Great to have @officialslystallone at Wild Card watching me spar today.

A photo posted by Manny Pacquiao (@mannypacquiao) on

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×