Tveir farþegar á gjörgæslu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. október 2016 12:58 Alls voru 41 um borð í rútunni en hún valt út af Þingvallavegi í morgun. vísir/vilhelm
Tveir farþegar úr rútunni sem fór út af Þingvallavegi í morgun eru á gjörgæslu Landspítalans en alls eru fimmtán farþegar úr slysinu komnir á spítalann. Ekki fást nánari upplýsingar um líðan farþega frá spítalanum að svo stöddu. Alls voru 41 farþegi um borð í rútunni. Flestir farþeganna eru kínverskir en ökumaður rútunnar og leiðsögumaður eru íslenskir. Farþegar sem voru minna slasaðir fengu aðhlynningu á heilsugæslustöð Mosfellsbæjar og þá opnaði Rauði krossinn fjöldahjálparstöð í bænum þar sem áfallateymi aðstoðar farþega. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins og var viðbragðsáætlun almannavarna virkjuð. Mikill fjöldi sjúkrabíla, lögreglubíla, tækjabíla slökkviliðs og björgunarsveitarfólk var sent á vettvang. Þá var viðbragðsáætlun Landspítalans virkjuð.Uppfært klukkan 13:15: Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru alls 42 farþegar um borð, 40 ferðamenn, ökumaður og leiðsögumaður. Búið er að gera grein fyrir öllum farþegum en lögreglan óskaði eftir því fyrr í dag að þeir sem kynnu að hafa tekið upp farþega úr rútunni myndu láta lögreglu vita. Var það gert svo lögreglan gæti fullvissað sig um að engan farþega vantaði. Eins og áður segir voru fimmtán farþegar fluttir á Landspítalann og 27 fóru í fjöldahjálparstöðina í Mosfellsbæ. Rútan er komin á hjólin en tæknivinna er enn í gangi á vettvangi. Vegurinn er því enn lokaður.
Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Rútuslys á Þingvallavegi Nokkrir tugir farþega voru í rútunni. 25. október 2016 10:37 Fjöldi slasaðra: Gera ráð fyrir að nýta 10 bíla til sjúkraflutninga Klippa hefur þurft 2 úr flaki rútunnar. 25. október 2016 11:34 Fimm til sjö manns alvarlega slasaðir eftir rútuslysið Fimm til sjö manns eru alvarlega slasaðir eftir rútuslys sem varð skömmu eftir klukkan 10 í morgun á Þingvallavegi við Skálafellsafleggjarann. 25. október 2016 12:05 Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Sjá meira
Fjöldi slasaðra: Gera ráð fyrir að nýta 10 bíla til sjúkraflutninga Klippa hefur þurft 2 úr flaki rútunnar. 25. október 2016 11:34
Fimm til sjö manns alvarlega slasaðir eftir rútuslysið Fimm til sjö manns eru alvarlega slasaðir eftir rútuslys sem varð skömmu eftir klukkan 10 í morgun á Þingvallavegi við Skálafellsafleggjarann. 25. október 2016 12:05