400 nýjar íbúðir og herbergi fyrir háskólanema Birgir Olgeirsson skrifar 13. október 2016 20:39 Soffía Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs hjá Íbúðalánasjóði, og Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta, skrifuðu undir fjármögnunina að viðstöddum ráðherra húsnæðismála, Eygló Harðardóttur, og Hermanni Jónassyni, forstjóra Íbúðalánasjóðs.
Verulega mun draga úr húsnæðisvanda háskólafólks á næstunni en fram til ársins 2019 verða yfir 400 nýjar stúdentaíbúðir og -herbergi laus til umsóknar fyrir nemendur við Háskóla Íslands. Um er að ræða umfangsmestu framkvæmdir í sögu Félagsstofnunar stúdenta og nemur framkvæmdakostnaðurinn alls 6,3 milljörðum króna. Íbúðalánasjóður mun lána alls ríflega 5,6 milljarða til framkvæmdanna en skrifað var undir fjármögnunina nú síðdegis á Gamla Garði að viðstöddum ráðherra húsnæðismála, Eygló Harðardóttur. Um er að ræða íbúðir og herbergi í nýjum byggingum við Gamla Garð, Sæmundargötu og Brautarholt. Í Brautarholti 7 eru 102 íbúðir í lokafrágangi og verða þær afhentar nýjum íbúum 1. nóvember. Flestar íbúðirnar verða við Sæmundargötu 23 á háskólasvæði Háskóla Íslands. Þar verður reist fimm hæða hús með 220-230 stúdentaíbúðum og –herbergjum með sérbaðherbergi en sameiginlegu eldhúsi og stofu en að auki verður bílakjallari undir húsinu. Framkvæmdin verður boðin út um mánaðarmótin október/nóvember og stefnt er að því að framkvæmdir hefist í mars 2017 og að fyrri áfangi verði tilbúinn um áramótin 2018/2019 og seinni áfangi í júlí 2019. 70-80 herbergi verða í nýrri byggingu hinum megin á háskólasvæðinu við Hringbraut og verður hún tengd Gamla Garði, elstu stúdentagörðum á Íslandi. Gamli Garður var tekinn í notkun 1934 og er húsið eitt af kennileitum borgarinnar, en það stendur við aðalaðkomuna að háskólasvæðinu. Að undangenginni samkeppni og deiliskipulagsbreytingu er stefnt að því að framkvæmdir hefjist haustið 2017 og þeim verði lokið um áramótin 2018/2019. „Ég óska stúdentum og Félagsstofnun stúdenta hjartanlega til hamingju með þessi stórhuga áform. Á bakvið þær býr mikill frumkvöðlaandi sem ég dáist að. Stúdentar eru í fararbroddi í að byggja hagkvæmt húsnæði, smærri íbúðir og herbergi sem nýta sameiginlega aðstöðu. Húsnæðið sem um ræðir og byrjað verður að afhenda í næsta mánuði og fram til ársins 2019 svarar brýnustu húsnæðisþörf ungs fólks. Ég þykist vita að þetta verður ekki síðasta verkefnið sem Íbúðalánasjóður kemur að með Félagsstofnun stúdenta. Við þurfum að fá enn meira húsnæði fyrir þennan hóp. Sömuleiðis vona ég að fjármögnun sambærilegra áforma annarra stúdentafélaga fari að komast í höfn og þá sjáum við fram á allt aðra og betri tíma í húsnæðismálum þessa mikilvæga hóps,“ segir Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, í fréttatilkynningu um málið. Í sömu tilkynningu segir Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta: „Þetta er stór stund fyrir okkur. Við erum með um 1.100 einingar til leigu og munum nú geta bætt við rúmlega 400 til viðbótar.". Við ætlum að byggja og afhenda þær hratt og örugglega og þessi öfluga fjármögnun frá Íbúðalánasjóði skiptir þar lykilmáli. Þeir vita það sem fylgst hafa með húsnæðismálum stúdenta að það hefur aldrei verið jafn mikil eftirspurn eftir stúdentaíbúðum. Nú í haust gátum við aðeins úthlutað rúmlega 200 nýjum íbúum húsnæði hjá okkur þar sem að tæplega 900 íbúar garðanna nýttu sér rétt sinn til að endurnýja leigusamninga. Það hafa aldrei verið jafn margir á biðlista eftir stúdentaíbúð en nú ætlum við að breyta því.“
Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira