Fiskeldi útlendinga Yngvi Óttarsson skrifar 6. september 2016 00:00 Að undanförnu hefur Gunnlaugur Stefánsson í Heydölum haft uppi þörf aðvörunarorð í Fréttablaðinu og Bændablaðinu um yfirvofandi, varanlegt og óafturkræft tjón á lífríkinu við Ísland verði fiskeldið ekki skikkað til að ganga sómasamlega um lífríkið. Ekki hefur staðið á svörum frá forsvarsmönnum þaðan enda vasar hinna erlendu eigenda djúpir. Því miður hafa svörin verið heldur ómálefnaleg. Þeir skauta alfarið framhjá því að ræða hið margvíslega tjón sem starfsemi þeirra mun valda ef ekki verður gripið í taumana. Alvarlegast og siðferðilega óverjandi er yfirvofandi óafturkræft tjón á lífríkinu. Hvernig dettur hinum erlendu eigendum í hug að þeir komist upp með að ganga þannig um náttúru landsins? Og vaða í leiðinni yfir þá sem byggja afkomu sína á einstakri náttúru, ferðaþjónustunni, smábátasjómönnum og fleirum?Erfðamengun Rannsóknir hafa sýnt að erfðasamsetning norska laxastofnsins sem nýttur er í eldinu er mjög frábrugðin erfðasamsetningu náttúrulegu stofnanna sem þróast hafa árþúsundum saman í ám landsins. Stroklaxar úr eldi ganga upp í ár í allt að nokkur hundruð kílómetra fjarlægð, hrygna þar og brengla erfðamengið sem aðlagað er viðkomandi árkerfi og valda í framhaldinu viðkomubresti. Um þetta eru vísindamenn sammála. Fiskeldið með hinum framandi norska stofni er enn hættulegra lífríkinu hér við land en í Noregi þar sem íslenskir laxastofnar eru erfðafræðilega svo fjarskyldir norskum stofnum. Norskur eldisstofn fékkst fluttur inn til landsins fyrir 30 árum gegn loforði Landssambands fiskeldisstöðva um að hann yrði aldrei nýttur í kvíaeldi við Ísland, aðeins landeldi. Það loforð hafa eldismenn svikið rækilega og dæmi hver fyrir sig um innrætið.Stroklaxar Sleppingar úr eldinu eru staðreynd. Bæði getur verið um minni sleppingar að ræða svo sem þegar skrúfa fóðurbáts rakst í net kvíar í Berufirði nýlega og fjöldi fiska fann gatið, og allt upp í að einstök eldiskví gefur sig í heilu lagi með allt að 200.000 norskum eldislöxum. Mat Veiðimálastofnunar er að fyrir hvert tonn framleitt í eldi megi að jafnaði reikna með einum stroklaxi. Þannig muni árlega sleppa 100.000 stroklaxar úr fyrirhuguðu 100.000 tonna eldi við Ísland. Mun fleiri en árlegur fjöldi veiddra laxa af náttúrulegum uppruna.Staðreyndir frá Noregi Eldisaðilar í Noregi gáfu upp um 300.000 stroklaxa árið 2014 en Hafrannsóknarstofnun Noregs álítur að raunfjöldi stroklaxa sé tvöföld til fjórföld sú tala. Vísindamenn telja því að árlega sleppi um ein milljón stroklaxa úr eldi í Noregi, nálægt einum laxi fyrir hvert tonn sem framleitt er. Staðreyndirnar tala sínu máli og óraunhæft að gera ráð fyrir lægra sleppihlutfalli í eldi hér við land vegna erfiðs sjólags, lagnaðarísa, mögulegs hafíss og annarrar óáranar. Nú er svo komið að náttúrulegir laxastofnar í Noregi hafa látið verulega á sjá. Heildarstofnstærðin er innan við helmingur af því sem hún var fyrir 30 árum og stofnum í einstaka ám ýmist verið eytt eða þeir í stórhættu. Niðurstöður nýrrar rannsóknar norsku náttúrufræðistofnunarinnar (NINA) sem birtar voru á þessu ári sýna að tveir af hverjum þremur náttúrulegum stofnum í Noregi eru orðnir erfðafræðilega brenglaðir af völdum stroklaxa úr eldi. Þarf frekari vitnanna við? Í ljósi þessara alvarlegu afleiðinga hafa Norðmenn hafið tilraunir með ófrjóan eldislax en auðvelt og ódýrt er að gelda eldislax með því að þrýstimeðhöndla hrognin. Eldið með ófrjóa fiskinn hefur gengið á kaldari svæðum í Noregi. Því ætti að vera vandalítið fyrir eldið hér á landi að nýta þessa tækni. Ekkert frumkvæði er að sjá í þá átt. Náttúruunnendur, almenningur og stjórnkerfið verða að grípa í taumana og koma í veg fyrir að fiskeldið valdi varanlegu og óafturkræfu tjóni á íslenskri náttúru.Þessi grein birtist upphaflega í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Ástþór Magnússon í spádómum? Gunnar Karl Halldórsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira