Skoðun

86.761

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Erfitt er að sjá hvernig það stenst 76. gr. stjórnarskrárinnar að langt leiddur krabbameinssjúklingur þurfi að greiða mörg hundruð þúsund krónur fyrir eigin meðferð á Landspítalanum. Þetta er vegna fyrirbæris sem kallast „kostnaðarhlutdeild sjúklinga“.

Það má í raun kalla þetta hvað sem er. Það breytir því ekki að þetta er bæði siðferðislega og lögfræðilega rangt á Íslandi. Á Íslandi á stjórnarskráin að tryggja að sjúkum og meiddum sé hjúkrað til heilsu á kostnað okkar allra. Það er hluti af því að vera Íslendingur. Það er í raun dálítið athyglisvert að þeir sjúklingar sem hafa þurft að greiða mörg hundruð þúsund króna hlutdeild í eigin meðferð á Landspítalanum eða annars staðar í kerfinu hafi ekki látið reyna á rétt sinn fyrir dómstólum.

Þessi vitund samhjálpar og stuðnings meðbræðra er inngróin í vitund Íslendinga allt síðan í íslenska þjóðveldinu. Hrepparnir pössuðu upp á fjárstyrk þegar bærinn brann. Á Íslandi hefur hins vegar skíðlogað í bænum um langa hríð og slökkvistarfið hefur gengið illa. Það er ekki síst af þessari ástæðu sem 86.761 Íslendingur lagði nafn sitt við undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar á vefnum endurreisn.is

Kári lagði til fjármála- og efnahagsráðherra með sverði úr þungmálmum í texta sem hann sendi frá sér um síðustu helgi. Ekki skal vikið að lýsingum Kára á ráðherranum hér heldur hinni efnislegu kröfu sem sett var fram. Kári virðist telja það svik að í fimm ára stefnu í ríkisfjármálum séu útgjöld ekki aukin til heilbrigðiskerfisins í samræmi við gefin loforð. Krafan í söfnuninni var að Alþingi myndi tryggja að útgjöld ríkisins til heilbrigðiskerfisins næmu 11 prósentum af landsframleiðslu. Þetta þýðir aukningu upp á 50 milljarða króna á ári. Hversu raunhæft er að gera kröfu um slíkt?

Hinn 16. júní á þessu ári samþykkti Alþingi lög um breytingar á lögum um sjúkratryggingar sem mun setja þak á útgjöld þeirra sem borga hlutdeild í eigin meðferð en lögin taka gildi 1. janúar næstkomandi. Þakið er hvergi tilgreint í lögunum og kostnaðarhlutdeild sjúklinga verður áfram til staðar en hámark hennar er ákveðið með reglugerð sem ráðherra setur. Fram kemur í umsögn Öryrkjabandalags Íslands um frumvarpið áður en það varð að lögum að kostnaður ríkissjóðs við að gera heilbrigðisþjónustu, sem lögin fjalla um, gjaldfrjálsa er eingöngu um 6,5 milljarðar króna. Það er ekkert sérstaklega há fjárhæð. Í raun eru þessi lög ekki sú gríðarlega stefnubreyting sem heilbrigðisráðherra vill meina að þau séu. Ef ráðherrann festir þakið í einni krónu gæti næsti ráðherra alltaf hækkað það. Þá á sjúklingurinn enga vörn í settum lögum.

Það þarf að verða eitt af forgangsverkefnum næsta þings að taka þetta til enn frekari endurskoðunar og afleggja hlutdeildina með lögum. Eða festa þakið í lögin sjálf.

Leiðarinn birtist fyrst í Fréttablaðinu. Í prentaðri útgáfu leiðarans var ranghermi um heilbrigðisþjónustu barna. Það hefur verið leiðrétt í rafrænni útgáfu hans. 




Skoðun

Sjá meira


×