Bílar

Í risarafhlöðuverksmiðju Tesla

Finnur Thorlacius skrifar
Framleiðsla er hafin í risarafhlöðuverksmiðju Tesla í Bandaríkjunum þó svo að hún sé nokkuð langt frá því að vera tilbúin, eða einungis af 14% hluta. Hún á að framleiða rafhlöður fyrir meðal annars 500.000 bíla á ári og ekki veitir af miðað við þær ríflega 400.000 pantanir sem Tesla hefur borist í Tesla Model 3 bílinn, en auk þess er ágæt sala í Tesla Model S og Tesla Model X bílunum.

Tesla segir að þessi verksmiðja verði stærsta verksmiðja heims og hún er nú meira en míla á lengd og verður fullkláruð 930.700 fermetrar að stærð. Einhverjar efasemdir eru hjá greinarskrifara um að þetta sé stærsta verksmiðja heims en bílaverksmiðja Volkswagen í Wolfsburg er stærri en Mónakó, en hvað um það.

Nú vinna um 800 manns að smíði hennar og á smíðinni að verða lokið að fullu árið 2018. Þegar verksmiðjan verður tilbúin og framleiðir rafhlöður í 500.000 bíla ári nemur sú framleiðsla meira en öll slík framleiðsla á hleðslurafhlöðum í heiminum árið 2014, fyrir aðeins tveimur árum.

Tesla byrjaði smíði verksmiðjunnar í júní árið 2014 og því má segja að vel gangi og hefur framleiðslu nú hafist í smáum stíl, en uppbygging verksmiðjunnar verður samhliða aukinn framleiðslu í hluta hennar. Það er yfirleitt ekki vaninn þar sem verksmiðjur eru yfirleitt kláraðar áður en framleiðsla í þeim hefst. Tesla er heldur ekkert venjulegt fyrirtæki og fer ávallt ótroðnar slóðir.
Tesla Model 3 fyrir utan risarafhlöðuverksmiðjuna.
Hluti verksmiðjunnar í byggingu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×