Þegar andstæður mætast Einar Ólafsson skrifar 20. júní 2016 11:01 Þegar andstæður mætast verða nýjungar til. Þegar mótorinn mætir hestakerrunni fæðist bíll, þegar óreiðukenndur nútími mætir ljóðinu verður til Únglíngurinn í skóginum, þegar rafmagnið mætir gítarnum kemur rokk og ról og þegar fiðlubogi bætist við verður til Sigurrós. Nýjungar verða til á jaðrinum, jafnvel í Krikanum og þaðan berast þær um heiminn og verða miðlægar, svið skarast, tæknin byltir atvinnugreinum og breytir samskiptamynstrum, búsetuskilyrðum og heimsmyndinni. (Andri Snær Magnason, 2007 við hönnun Krikaskóla í Mosfellsbæ) Ég átti þess kost að vinna með Andra Snæ við hönnun á Krikaskóla í Mosfellsbæ. Hans þáttur í hönnunarferlinu var meðal annars að skilgreina hlutverk skólans gagnvart börnunum, kennurum og nærsamfélaginu við skólann. Hann vann það í samvinnu við hóp arkitekta, þar á meðal undirritaðan, skólamenn, verkfræðinga, og landslagsarkitekt. Við áttum fjölmarga fundi og okkur var öllum ljóst að við vorum að brjóta blað í sögu hönnunar á skólum hér á landi. Hér átti að vanda til verka. Mosfellsbær lagði línurnar um hvernig staðið skyldi að verki. Samhliða skyldi hanna skólastefnu utan um rekstur skólans og byggingu sem styddi við skólastefnuna. Þetta þurfti allt að haldast í hendur. Arkitektateymið valdi Andra Snæ ásamt tveimur mjög reyndum skólastjórum og verkfræðingastofu til samstarfs. Afraksturinn varð skóli sem þáverandi menntamálaráðherra sagði að væri fyrirmynd allra skóla. Svona ættu allir skólar að vera. Andri Snær átti stóran þátt í að svo vel tókst til. Hið manngerða átti að sameinast náttúrunni. Aukið svigrúm átti að skapast bæði úti og inni, líkt og skólastefnan sagði til um, úr varð bygging með stórum og breiðum svölum þar sem lítið var um húsgögn – hver segir að maður læri betur sitjandi en liggjandi?Skólastarf er eitt stærsta svið íslensks samfélags, skólinn er einn stærsti hluti af lífi okkar sem einstaklinga og í framtíðinni enn stærri þáttur þar sem nám mun fléttast inn í allt ævistarfið. Framtíðin er óviss, við vitum ekki hvaða tækni, hvaða þekking eða hvaða atvinnugreinar verða ríkjandi árið 2035 þegar fyrstu nemendur skólans stíga sín fyrstu skref út í atvinnulífið. Við vitum það eitt að menn þurfa sterka sjálfsmynd, að kunna tök á sjálfum sér og mannlegum samskiptum og fjölbreyttum hæfileikum sínum. (Andri Snær Magnason, 2007 við hönnun Krikaskóla í Mosfellsbæ) Skóli og menntun er eitt af því sem Andri Snær brennur fyrir. Hann er einlægur í sínum skoðunum og verkum. Það kom svo berlega í ljós í öllu hönnunarferlinu. Hann kunni svo vel að „grípa bolta“, hugsa, íhuga og „henda til baka“, skiptast á skoðunum. Ræða fram og til baka í leit að góðum lausnum. Andri Snær sýndi það svo vel að hann er mjög lausnamiðaður. Frjór í hugsun og skildi svo vel þörfina á góðum skóla, öðruvísi skólastarfi. Við megum ekki festast um of í gömlum hefðum heldur verðum við að nýta tæknina til að búa til ný störf í framtíðinni. Störf sem við vitum ekki í dag hvað munu heita. Þetta skilur Andri Snær og hefur margoft sagt. Hann skilur núið og framtíðina. Þess vegna er Krikaskóli svona vinsæll skóli bæði af nemendum, kennurum og foreldrum. Andri Snær á stóran þátt í því. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Ástþór Magnússon í spádómum? Gunnar Karl Halldórsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira