Skoðun

Ég er ekki til sölu

Ástþór Magnússon skrifar

Íslendingar geta tekið forystu, ekki aðeins í fótbolta, einnig sem ný og fersk rödd til friðar í heiminum. Allt sem þarf er bjartsýni, áræðni og þrautseigur forseti með sterka sannfæringu og framtíðarsýn.

 



Þú kastar atkvæði þínu á glæ með því að láta valdaklíkur og peningavald teyma þig eins og sauð til að kjósa þeirra fulltrúa á Bessastaði.  Þeir frambjóðendur sem mælst hafa efstir í kokkuðum könnunum fjölmiðla eiga það allir sameiginlegt að vera framleiddar glansmyndir sem tengjast slíku baklandi.



Væri ekki skynsamlegra fyrir þína hagsmuni og þjóðarinnar að fá óháðan forseta fólksins á Bessastaði? Ég er í framboði á eigin forsendum og er ekki handbendi neinna flokka eða fylkinga og að baki mér standa engin slík öfl.  Ég er ekki til sölu. Þjóðin getur treyst því að enginn verður staðfastari en ég sem virkur öryggisventill þjóðarinnar á Bessastöðum.



Ég býð mig fram til að standa dyggan vörð um fullveldi og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar gegn hernaðarlegri og fjármálalegri íhlutun.  Ég er óhræddur við að þjóðin fjalli um sín stærstu mál í þjóðaratkvæðagreiðslum.

 



Ísland á að gerast friðarríki. Forseti Íslands getur laðað hingað starfsemi tengda friðarmálum, lýðræðisþróun og náttúruvernd.  Rísi stofnanir á vegum Sameinuðu þjóðanna á Íslandi mun byggjast upp nýr atvinnuvegur sem getur skilað fleiri hundruð milljörðum í þjóðarbúið og veitt þúsundum manns blómleg störf í framtíðinni. Með slíkri tekjuaukningu sem land friðarins getum við veitt ókeypis heilbrigðisþjónustu, bætt kjör eldri borgara og öryrkja og hjálpað ungu fólki að koma undir sig fótunum.



Þetta er raunverulegt tækifæri fyrir íslensku þjóðina eins og fram hefur komið í málflutningi erlendra fræðimanna og nóbelsverðlaunahafa sem hafa tekið undir þessa hugmyndafræði um Ísland sem friðarríki.



Aðeins eru tveir kostir í boði á kjörseðlinum. Ég eða hinir átta. Settu X við Ástþór fyrir forseta fólksins sem mun skila þjóðinni auknum tekjum og velsæld og sem mun standa eins og klettur með fólkinu í landinu bæði hvað varðar innanríkis- sem og utanríkismál. Hinir átta frambjóðendurnir horfa að mestu innávið og munu því litlu skila í ríkiskassann. Margir þeirra tengjast valdaklíkum og fjármálaöflum.  



Ég skora á þig að hugsa sjálfstætt og virkja atkvæði þitt til að styðja við bakið á þeirri hugmyndafræði að Ísland gerist friðarríki. Þannig lætur þú gott af þér leiða og stuðlar að tekjuaukningu í landinu. Láttu ekki teyma þig í þann bás að kasta atkvæðinu þínu á glæ og fá árlegan skattreikning fyrir veisluhöld forseta.

 



Allt hefst með einni rödd, einni aðgerð, einu atkvæði. Láttu þitt atkvæði skipta máli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×